grunnskólar.
Frú forseti. Ég þakka fyrir spurninguna. Það er náttúrlega best að taka ákvörðun þegar öll kurl eru komin til grafar. Oftar en ekki þurfum við þó að taka einhvers konar ákvörðun áður en með þeim fyrirvara að við eigum eftir að sjá meiri upplýsingar í málinu. Meiri upplýsingar eiga eftir að koma fram og því verðum við stundum að láta tímann leiða sannleikann í ljós. Það er stundum bara þannig og mér finnst það ásættanlegt. Það krefst æðruleysis og það krefst þess líka stundum að gera mistök eða segja eitthvað sem maður byggði kannski ekki á mikilli vitneskju (Forseti hringir.) heldur fremur einhvers konar kviðdómi.