grunnskólar.
Forseti. Það er tvennt sem mig langar til að nefna eftir að hafa hlustað á hv. þm. Jón Gnarr. Ég var náttúrlega sammála honum í næstum því öllu en get þó sagt að þau börn sem greinast með dyslexíu þurfa ekki læknisvottorð. Dyslexía er greind af sérkennurum og þar til gerðum hópi fagmanna og vottorð frá þeim gildir sem gilt plagg. Börn sem greinast með dyslexíu fá aðgang að Hljóðbókasafninu. Það er liður í því að koma til móts við þau í námi og þeim að kostnaðarlausu fram til 18 ára aldurs. Þau hafa tæki í skólanum og geta skráð sig inn á Hljóðbókasafnið og þannig nýtt sér það. Þau þurfa ekki símana. (Forseti hringir.) Ég náði ekki að spyrja.