157. löggjafarþing — 31. fundur, 11. nóv. 2025.
grunnskólar.
232. mál
Frú forseti. Ég ætla að tala um hitt atriðið sem varðar refsingu við því að brjóta símabann í skólum. Ég held að í raun yrði búið til nýtt vandamál ef skólafólk þyrfti að hlíta refsingum. Ég held að það sé miklu nær að við reynum að ná þessum breytingum í gegn með samvinnu allra sem að þessu koma, foreldrum, nemendum, kennurum og skólasamfélaginu. Ég held að það muni alveg vera hægt og þá er gott að vera með lagalegan bakgrunn til að styðjast við og vísa í.