157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:54]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Frú forseti. Af fenginni reynslu í gegnum lífið veit ég að það verða að vera lög en þau mega ekki bara vera að því bara. Við eigum að setja lög vegna þess að þau hafa tilgang og ef við fylgjum ekki lögunum þá eiga að fylgja því afleiðingar. Þetta þarf að vera skýrt. Auðvitað reynum við að beita tilmælum og hvatningu en þegar kemur að því að lögin eru brotin eða þverbrotin má sýna því umburðarlyndi og þolinmæði en síðan þurfa einhverjar afleiðingar að verða af því. Mér finnst bara matsatriði hverjar þær ættu að vera. Ég veit það ekki en vek bara máls á þessu í áframhaldandi vinnu vegna þess að með aukinni tækni (Forseti hringir.) held ég að við munum ræða þetta oftar.