157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:57]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Frú forseti. Eins og ég segi hef ég enga staðfestingu fyrir því að þetta bann muni algerlega virka. Ég er bara að segja: Ef við ætlum að hafa bönn þurfum við að gera þau góð. Það að vera svona almennt tortrygginn gagnvart bönnum og sérstaklega því sem ég kalla bannhyggju eða þeirri ranghugmynd að hægt sé að leysa öll vandamál heimsins með því að banna eitthvað gerir mig hreint ekki andsnúinn bönnum. Mér finnst eðlilegt að það sé bannað að keyra yfir gangbraut þegar gönguljós loga og mér finnst það bara heilbrigð skynsemi. Það að við séum að taka þessi skref finnst mér líka mjög heilbrigð skynsemi. (Forseti hringir.) Bann er gott ef það þjónar einhverjum göfugum tilgangi en er ekki bara eitthvað út í loftið.