157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:58]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég fékk ekki beint svar frá hv. þingmanni um af hverju þetta bann væri eitthvað betra þótt ég skildi hvað hann var að fara með að málið væri það stórt. Nú er samt ekki langt síðan hv. þm. Jón Gnarr stóð hér, mér til mikillar gleði, og var á móti banni á erlendri veðmálastarfsemi. Ég legg þetta t.d. til jafns. Henni er alla vega lýst sem miklu samfélagsmeini í okkar samfélagi í dag en við erum báðir sammála um að við viljum samt leyfa þetta og að við fáum einhvern veginn að glíma við þetta sjálf. Ég næ því þar með ekki alveg af hverju þetta bann á að virka.

Bara rétt af því að við erum hér með fyrrum borgarstjóra og hér er mikið búið að tala um læknisvottorð, af því að við vitum að ef þetta bann kemur verða alltaf einhverjar undanþágur veittar; það bara verður að gerast því að sum börn verða að fá þetta. Sér maður sem þekkir væntanlega sveitarstjórnarstigið mætavel sem æðsti maður stærsta sveitarfélags á Íslandi til fjögurra ára (Forseti hringir.) ekki fram á gríðarlegt flækjustig fyrir sveitarfélögin að reyna að glíma við afleiðingar slíks, alla vega þessar undanþágur, ef skólayfirvöld fá ekki bara að hafa þetta hjá sér? (Forseti hringir.)