grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég sé tilefni til að þakka hv. þingmönnum fyrir ágæta umræðu sem hefur verið um þetta mál í dag. Það er greinilegt að á þessu eru, ja, ég segi nú ekki stórlega skiptar skoðanir en þetta gefur tilefni til skoðanaskipta og ýmis álitamál vakna. Í grunninn snýst þetta um að hlífa skólaumhverfinu við símtækjunum sem ég tel að sé markmið sem er sannarlega góðra gjalda vert. Ég er ekki alveg á sömu buxum og hv. þingmenn Sjálfstæðisflokks sem virðast vera stórlega efins um að þessi aðferð virki. Ég er ekkert frá því að lögbann á síma í skólum sé áhrifaríkt tæki. Við vitum að veruleikinn getur verið margbrotinn og fólk getur haft miklar efasemdir um þær reglur sem eru settar í skólum og ég held að það sé ekkert verra að geta sagt: Nei, það er ólöglegt að vera með símann í skólum. Þar með væri það hreinlega afgreitt. Það eru auðvitað þau áhrif sem er verið að leitast eftir með þessu frumvarpi. Hins vegar ber að líta til þess að við höfum ekki séð hvernig sú reglugerð lítur út sem hæstv. ráðherra myndi bera á borð í kjölfar þess að veitt yrði heimild fyrir því að reglugerð yrði birt, þ.e. við vitum ekki hvernig símabannið myndi líta út. Það skapar ákveðna óvissu í þessari vinnu og ég held að það væri ekkert óeðlilegt að kalla eftir því frá hæstv. ráðherra í þessari vinnu í framhaldinu að við fáum að sjá drög eða einhvers konar beinagrind að því hvernig svona símabann verður eða hvernig hæstv. ráðherra hugsar sér það. Þá eigum við auðvitað betra með að vinna í þessari heimild til að setja það. Að vísu sé ég ekki annað en að maður myndi styðja málið í grófum dráttum eins og það lítur út, þótt ég geti ekki fullyrt um það núna, en ég held að það væri miklu betra fyrir alla að vita nákvæmlega í hverju þetta felst vegna þess að margir eru nú þegar komnir með símabönn. Ef þau eru að virka vel á einhverjum stöðum og það kemur síðan reglugerð sem kveður á um eitthvað allt annað eru menn ekkert endilega að vinna samkvæmt hinum góðu markmiðum sem felast einfaldlega í því að hlífa börnunum frá símum. Ef menn eru með aðferðir sem virka er kannski ekki í öllum tilvikum tilefni til að koma með miðlæga skipun að ofan um eitthvað allt annað kerfi.
Sannarlega vakna spurningar um það hvort ríkisvaldið eigi að miðstýra þessu og ég kom svo sem inn á það að eina raunverulega breytingin sem verður er sú að það verður í meðvitund almennings að símar séu bannaðir í skólum. Forræðishyggja á við þegar börn eru annars vegar, þá stundum við forræðishyggju. Það er bara það sem uppeldi snýst um. Ef menn hafa eitthvað kynnst snjalltækjanotkun ungmenna eins og hún blasir við okkur í dag hafa börn augljóslega ekki forsendur til að meta sjálf hvað er þeim fyrir bestu í þeim efnum. Það er bara því miður sorgleg staðreynd lífsins. Það væri auðvitað betra ef við værum að nálgast þetta af jafnvægi varðandi snjallsímanotkun allra kynslóða samfélagsins. Þar er ég ekki að halda því fram að fullorðnir séu yfirleitt að ráða við þetta en þar væri einmitt forræðishyggjan e.t.v. vafasöm. Við verðum að veita fullorðnum eitthvert svigrúm til sjálfsskaða í okkar samfélagi. Það er bara þannig og við gerum það sannarlega á ýmsum sviðum.
Að einhverju leyti tæklar þetta forræðishyggjupunktinn. Einhver sagði: Já, ef þessir skólastjórar verða að fá lög til að geta bannað síma í sínum skólum eru þeir bara eitthvað vanhæfir af því að þeir geta það alveg núna. Þetta er auðvitað sjónarmið; skólastjórar verða bara að geta gripið inn í. Rétt eins og við erum með opinberlega auglýstan útivistartíma og annað eins er það þó í eðli sínu ómissandi fyrir svona stór kerfi eins og skólakerfið að tilefni sé sannarlega fyrir ríkisvaldið og hina miðlægu einingu á einhverjum tímapunkti að setja einhver góð viðmið, og í lög í þessu tilviki. Ekki það, ég veit til þess að í mörgum skólum sé þetta að gefast afskaplega vel. Finnar virðast hins vegar búnir að setja lög þessa efnis og þar sem við lítum oft til þeirra í menntamálum er fullkomlega eðlilegt að við séum að skoða þetta.
Í þessu samráðsferli sem er fram undan má líta til þess að þegar við förum af stað með þetta mál er það að hluta til svolítið ómótað vegna þess að það á eftir að fara fram mikið samráð. Við erum að fara inn í samráð í allsherjarnefnd og það verður mjög fróðleg vinna. Þar þurfum við sannarlega að hlusta eftir sjónarmiðum kennara og spyrja þessarar spurningar: Er það raunverulega gagnlegt á heildina litið fyrir allt skólakerfið að þetta sé ólöglegt, að það sé ólöglegt að hafa síma í skólum? Því það er það sem við erum að gera, við erum að banna síma með lögum. Ég ætla ekkert að fara út í það hér hver þessi sálrænu áhrif eru á börnin. Ég held að þau séu öllum kunn. Þessi forræðishyggjuþráður í manni væri líka opinn fyrir að skoða meira að segja opinber viðmið og í einhverjum skilningi snjallsímanotkun barna yfirleitt, á hvaða aldri hún er viðeigandi og hversu mikil notkun er viðeigandi. Ég átta mig hins vegar á því að skynsemisþráðurinn í mér mætir sannarlega þessum forræðishyggjuþræði og segir að slíkt sé æði flókið í útfærslu. Það getur hljómað vel að setja ýmsar reglur en þær geta auðvitað snúist upp í andhverfu sína, verið virtar að vettugi og þá er engin ástæða til að hafa þær. Ég býst þó við að maður eigi að benda á að ýmsir kostir fylgja þessari notkun, þessari netvæðingu og snjallvæðingu. Ég held að það sé alltaf viðeigandi í þessari umræðu þótt maður eigi kannski stundum erfitt með að sjá það. Henni fylgja hins vegar sannarlega miklir ókostir og hún er að mörgu leyti hættuleg fyrir börnin.
Að þessu sögðu þá er ég nú bara spenntur að fá þetta mál inn í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég held að það sé almenn samstaða um meginmarkmið frumvarpsins. Ég er ekkert sannfærður um það hvaða leið er nákvæmlega best á þessu stigi máls. Við þurfum að skoða það vel því að við í Miðflokknum erum vel opin fyrir þessu símabanni, ekki síst í ljósi þess að þetta símabann er nú þegar við lýði í skólum. Enginn hefur gert athugasemd við það þannig að það að gera þetta formlegt á vegum ríkisvaldsins, hvernig beri að gera þetta og hvort það sé pólitískur vilji og meiri hluti fyrir því á Alþingi ber að skoða vel. Ég efast í raun og veru ekki um það og geri ekki ráð fyrir öðru en að það verði bara ágætt samstarf um þetta mál.