157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[17:12]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið við andsvari mínu. Það sem mig langar svolítið að fara inn á í mínu seinna andsvari eru orð hv. þingmanns um það að svör skólafólks, varðandi það hvers vegna megi ekki vera með síma í skólum, gætu þá bara verið: Það er ólöglegt. Hvort hv. þingmaður telji að þetta sé í raun nauðsynlegt vegna þess hversu mikilvægt málið er og, af því að hér kemur fram að 97% skóla eru búnir að setja sér reglur, og hvort hann telji þá líka að verið sé að gefa þeim skólum langt nef með þessu frumvarpi. Ég veit ekki hverjum þætti eðlilegt að þegar 97% manna hefðu búið sér til kerfi kæmi ríkið og segðist með einhverjum hætti þurfa að koma með ríkiskerfi, sem mér hefur reyndar þótt hæstv. ráðherra slá í og úr með, þ.e. hvort þetta sé ríkiskerfi eða ekki. Ég held að þetta sé vissulega ríkiskerfi. Mér finnst það sjálfum ekkert slæmt í þessu máli og er kannski á skjön við marga samflokksmenn mína í því. Eftir standa spurningar varðandi orðið ólöglegt, hvort það hjálpi skólunum að stytta sér leið í umræðunni og svo hitt hvort verið sé að gefa skólakerfinu að einhverju leyti langt nef með því að 97% skóla eru búnir að vinna í að búa til reglur í samráði við skólasamfélögin sín og svo birtist hér frumvarp sem trompar það með einhverjum hætti.