grunnskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar sem er líka sannarlega góð spurning. Í fyrsta lagi þurfum við auðvitað að átta okkur á því að lög hafa áhrif á samfélagið, við setjum þau til þess og þau hafa áhrif á fólk. Auðvitað beitir fólk þeim fyrir sig og það er bara hluti af ásetningi okkar hér að senda mjög skýr skilaboð með löggjöf um það hvernig samfélagið eigi að vera. Það getur farið út í forræðishyggju þegar við erum farin að reyna að stýra lífi fólks í smáatriðum þegar eðlileg skynsemi býður að við ættum alls ekki að gera það. Lög eru auðvitað alltaf í eðli sínu ákveðin forræðishyggja. Það er bara það sem við þurfum að átta okkur á. Hver eru áhrif þessara laga? Það er hin áleitna spurning hér og þegar við spyrjum okkur hvort við þurfum að setja lög um eitthvað sem nú þegar er í töluverðum skorðum víðast hvar í samfélaginu þá kemur þessi spurning upp: Þurfum við lög? Ég held að löggjafinn þurfi alltaf að spyrja sig að því og megi ekki vera lagasetningargjarn. Þegar samfélagið hefur með fúsum og frjálsum vilja og samkomulagi í samfélagi manna komist að einhverri ágætri niðurstöðu og komið málinu í ágætan farveg þá viljum við ekki lagasetningu um öll smáatriðin. Óskrifaðar reglur eru mjög fínar, skrifuð regla sprettur bara af nauðsyn. Þess vegna segjum við að í þessu samráðsferli verðum við að ræða við skólasamfélagið, ræða við kennara, skólastjórnendur, nemendur og foreldra og vita að þetta er ekki gert nema að gefnu tilefni. Ég held að þessi lagasetning og hugmyndin um lagasetninguna sé sprottin af tilefni, að það sé eitthvert ákall um að það verði samræmd heildarhugmynd um það hvernig skuli hátta svona símabanni.
Ef eitthvert ákall er um það, sem ég á eftir að kynna mér nákvæmlega hvernig liggur í skólasamfélaginu, þá finnst mér ágætt að löggjafinn skoði það mjög vandlega hvort ekki sé tilefni til að setja lögin. Við þurfum bara að reyna að skynja þetta, hvort löggjafinn þurfi að grípa inn í ástand sem er í skólunum og reyna að hafa á það töluverð áhrif með skýrri lagasetningu. Það er bara rannsóknarspurning sem við rannsökum núna. Ég veit ekki fyrir fram hvort svarið verður já eða nei. Það getur vel verið að menn komist að þeirri niðurstöðu eftir á að þessi lagasetning sé bara upp á punt og þá mun maður auðvitað ekki taka þátt í henni, ef þetta er ekki að fara að hafa raunveruleg jákvæð áhrif á skólana.