157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[17:17]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingar á lögum um grunnskóla, símar og snjalltæki. Ég fór í andsvör við hæstv. ráðherra áðan og er gagnrýnin. Ég er reyndar ekki búin að taka ákvörðun um það hvort ég muni styðja þetta mál ef það kemur einhvern tímann út úr hv. allsherjar- og menntamálanefnd, því eins og ég sagði er ég hlynnt því að snjallsímar og snjalltæki séu ekki inni í skólunum okkar nema í algjörum undantekningartilfellum og þá bara í einhverjum tilfellum sem lúta að náminu sjálfu. Ég aftur á móti velti því mjög fyrir mér hvort það sé einhver ástæða fyrir þessu frumvarpi því eins og hér hefur komið fram hafa langflestir skólar hreinlega bannað slíka notkun. Ég hef heyrt kennara og skólastjórnendur tala um mikilvægi þess að vinna að þessu banni með skólasamfélaginu, að þeir séu þátttakendur í að móta þessar reglur. Mér finnst það mjög lýðræðisleg og skemmtileg umræða og ég veit ekki betur en að þar hafi almennt tekist nokkuð vel til. Það eru alla vega þær fréttir sem ég hef heyrt af símalausum skólum eða símafríi í skólum eða símabanni eða hvernig sem það er tilkynnt og hvernig sem það er útfært. Ég heyrði reyndar hér áðan hjá hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur mögulega kannski bestu rökin fyrir því að við ættum að fara í eitthvert svona frumvarp, þ.e. ef talin væri þörf á því að löggjafinn kæmi með slík lög til þess að skólarnir gætu framfylgt því símabanni eða þeim reglum sem þeir hafa komið með. Ég heyrði reyndar ekkert slíkt í máli hæstv. ráðherra þegar hann mælti fyrir málinu og ég sé ekkert slíkt í greinargerð þessa frumvarps. Ég velti fyrir mér hvort það sé raunverulega staðan því eins og ég segi, ég hef ekki heyrt af því, það kann að vera. Eignarrétturinn er til staðar og jú, að sjálfsögðu eiga börnin þessi tæki eða foreldrar þeirra og forráðamenn. Miðað við það sem stendur í greinargerð frumvarpsins, ef ég horfi bara á það, þá er því þó ekki til að dreifa í rökstuðningi með þessu frumvarpi að það sé einhvern veginn þörf á því að lögbinda þetta út frá þeim reglum sem skólarnir hafa sjálfir gert.

Ég sé reyndar líka ágætisumfjöllun um samanburð milli annarra landa þar sem það er bara svona sitt á hvað hvernig þetta hefur verið gert, hvort þetta hafi farið í gegnum löggjafann eða hvort skólarnir hafi gert þetta sjálfir, sveitarfélögin eða fylkin. Almennt virðast flestir vera komnir á þá skoðun að símar séu ekki æskileg fylgitæki inni í skólastofum hjá börnunum okkar. Ég er bara sammála því, ég er alveg sammála því. Ef þið hefðuð spurt mig fyrir fimm eða tíu árum er hins vegar ekkert víst að ég hefði verið sammála því eins og margir hv. þingmenn hafa einmitt sagt hér. Fyrir mér er þetta vinnutæki. Ég hef ekki opnað tölvuna mína í dag en ég er samt búin að vera í vinnunni í allan morgun þannig að þetta tæki hér er það sem ég hef notað til að koma á framfæri mínum skilaboðum, til að fletta ýmsu upp, til að lesa þessi frumvörp og annað þannig að auðvitað er þetta bara orðið vinnutæki. Þess vegna er mikilvægt að börnin okkar læri líka að nýta það en það á ekki að trufla þau í að læra að lesa, skrifa og reikna. Það sem mín gagnrýni beinist kannski fyrst og fremst að er hvað við erum ekki að ræða hérna. Við erum búin að vera núna í nokkra klukkutíma að ræða um símabann en samt ekki símabann, bara oggu ponsulítið frumvarp með tveimur greinum um það að mögulega leyfa ráðherra að búa til reglugerð sem mögulega setur einhvers konar reglur um það hvernig þessu eigi að vera háttað. Það er það sem við erum búin að vera að ræða; skemmtilegt umræðuefni enda bara málefnalegar og góðar umræður. Það sem við höfum hins vegar ekki rætt er: Hvað er hæstv. ráðherra að gera varðandi stöðu menntamála í landinu? Það er það sem við þurfum að vera að ræða. Það er það sem hæstv. ráðherra þarf að gera, hann þarf að koma hingað inn í þennan sal og veita raunveruleg svör og lausnir á því hvernig við ætlum að komast út úr þeim vanda sem við erum stödd í. Því miður er það svo að inn í þennan þingsal á þessu þingi hafa bara ratað tvö frumvörp frá hæstv. ráðherra. Á þingmálaskrá hæstv. ráðherra eru sjö mál. Margt af þessu eru mál frá síðustu ríkisstjórn. Ég fagna því að hæstv. ráðherra haldi áfram með góð mál frá síðustu ríkisstjórn. Ég studdi þau mál sem hæstv. ráðherra kom með hér á síðasta þingi sem voru einmitt til að framfylgja þeirri stefnu sem mörkuð hafði verið á síðasta kjörtímabili. Það er gott að við séum ekki að taka algjörar U-beygjur þegar kemur að jafn mikilvægum málaflokki og menntamálum þó að skipt sé um ríkisstjórn. Hér eru þó ekki svör við þessum alvarlega vanda sem við glímum við í dag sem er að börnin okkar eru því miður ekki að ná nægilega góðum tökum á því að lesa, skrifa og reikna. Þetta er svo alvarlegt. Þetta er alvarlegt fyrir börnin okkar, fyrir samfélagið allt og samkeppnishæfni okkar til framtíðar.

Virðulegur forseti. Ég vil alls ekki láta túlka orð mín með þeim hætti að ég treysti ekki kennurum þessa lands. Ég veit að inni í öllum grunnskólum er verið að vinna mjög góða vinnu. Þetta er ekki kennurum að kenna og þetta er ekki það að krakkarnir okkar séu svo heimskir því að þau hafa yfirburðafærni í ofboðslega mörgum hlutum. Það breytir hins vegar ekki þeirri staðreynd að við þurfum að kenna þeim þessa grunnfærni sem mun skipta öllu máli til framtíðar. Ef þetta er ekki kennurum að kenna og ekki börnunum að kenna hlýtur þetta að vera kerfinu okkar að kenna. Þá hlýtur þetta að snúast um það að við höfum ekki búið til þau tæki og tól sem þarf til að ná þessum árangri. Já, já, þá getur fólk komið upp og sagt: Hvað hafið þið verið að gera hérna á síðustu vakt? Allt í lagi, við getum alveg tekið umræðu um það. Í dag erum við hins vegar hér, núna, og þetta er staðan. Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu; flott. Samræmda námsmatið; flott að mörgu leyti. Ég hef þó líka sagt það hér að ég tel mig hafa gert mistök með því að samþykkja að falla frá samræmdu prófunum. Við hefðum bara átt að halda þeim áfram þótt verið væri að þróa matsferlana. Það er í rauninni grunnatriði, okkur vantar að ræða alvöruatriði. Símar í skólum, sem mér heyrist flestir hér vera sammála um að eigi að banna eða vera með einhverjar reglur um — það er verið að gera það. Hér erum við því að eyða, eða reyndar ekki eyða — ég ætla bara að njóta þess að vera með mínum samþingmönnum í þessum sal og ræða þetta skemmtilega mál en þetta mun hins vegar ekki breyta neinu. Þetta mun ekki breyta neinu fyrir íslenskt menntakerfi. Ég held að þetta muni ekki einu sinni breyta neinu í skólunum sem þegar eru með reglur, nema jú, kannski, og það er eitt sem ég ætla að biðja hæstv. ráðherra að hafa í huga og hv. allsherjar- og menntamálanefnd, hvort þessi reglugerð muni gera það að verkum að þá þurfi skólar sem þegar hafa mótað sér einhverjar reglur að fara að endurskoða sínar reglur og breyta þeim. Þá má alveg velta því fyrir sér: Er það það sem við viljum að skólarnir séu að gera, að eyða tíma í skriffinnsku og skrifræði í kringum það að aðlaga reglur, sem þegar er búið að setja og virka bara vel, í átt að einhverri reglugerð sem hæstv. ráðherra stimplar frá ráðuneytinu? Ég er ekki sannfærð. Ég er ekki sannfærð.

Virðulegur forseti. Svo að við höldum áfram og ég fari kannski aðeins inn í tæknina, burt frá menntakerfinu og að því sem er inni í málaflokki hæstv. ráðherra, sem eru börnin. Ég óttast að við séum bara svo eftir á í þessu. Eins og ég segi eru nær allir skólar búnir að móta sér einhverja reglu. Það er ágætisumfjöllun hér um hvað er að gerast í löndunum í kringum okkur þar sem flest lönd en alls ekki öll eru búin að gera þetta með einhverjum hætti, einhvers konar afbrigðum, búin að móta um það einhver lög frá þingi viðkomandi landa. Það sem löndin í kringum okkur eru hins vegar að ræða, og ég hef ekki heyrt hæstv. ráðherra ræða, er bara bann við samfélagsmiðlum. Hér er verið að vísa í útivistartíma og reglugerð um útivistartíma og að slíkt hafi reynst vel. Það hefur verið mikilvægt fyrir foreldra að geta vísað í það að reyndar séu lög, reyndar reglugerð, um útivistartíma. Gott og gilt. Ég hef svo sannarlega verið í forsvari í foreldrasamfélagi þar sem við höfum notað þetta og bara gott að geta sameinast um það. Ég meina, Norðmenn, Frakkar og Danir eru að ræða bann við samfélagsmiðlanotkun fram að 15 ára aldri. Við vitum að þessi fyrirtæki eru flest með 13 ára aldurstakmark en það er mjög auðvelt að komast fram hjá því og því miður láta mjög margir foreldrar það viðgangast að börn undir 13 ára aldri séu inni á þessum samfélagsmiðlum. Hér er ágætisumfjöllun um rannsóknir, skýrslur og kannanir hvað varðar — einmitt nú hringir síminn til að trufla mig í ræðu, svona trufla þessi tæki — símann í skólastofum en við eigum líka töluvert af rannsóknum og könnunum sem sýna áhrif samfélagsmiðla á sjálfsmynd og geðheilbrigði barna og náttúrlega hræðilegar sögur þar að lútandi.

Virðulegur forseti. Væri ekki nær að eyða tímanum í að leggja áherslu á að búa til þann grunn sem kennarar þessa lands þurfa á að halda til að tryggja að þeir geti kennt börnum að lesa, skrifa og reikna, þessa grunnfærni, og velta fyrir okkur heilbrigði barna og ungmenna með því að setja bara bann við samfélagsmiðlum? Sú sem hér stendur talar almennt ekki fyrir miklu banni en þetta er ég algerlega tilbúin að ræða alveg eins og við bönnum reykingar og áfengi fram að ákveðnum aldri.

Virðulegur forseti. Ég ætla að hvetja hv. allsherjar- og menntamálanefnd áfram í þessari vinnu. Væri ég í þeirri nefnd hefði ég gjarnan viljað fá drög að reglugerð frá hæstv. ráðherra við umfjöllun í nefndinni. Það er nokkuð sem við gerum oft hér þegar við heimilum og í raun fleytum ákveðnu valdi áfram yfir til ráðherra um að þeir eigi að útfæra eitthvað með reglugerð. Þá vill þingheimur oft sjá ofan í það hvað nákvæmlega er átt við. Ég hefði gjarnan viljað það. Kannski á hæstv. ráðherra einhvers konar drög heima í ráðuneytinu sínu sem væri ástæða til að birta þingheimi eða hið minnsta þeim sem fjalla um málið í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Það er nú samt þannig að hér í greinargerðinni er öllum vandræðunum sem kunna að verða við að gera slíka reglugerð velt upp því að við vitum jú að það var starfshópur að störfum sem ætlaði að gera leiðbeiningar og honum tókst ekki að koma sér saman um þær. Varðandi valkosti við lagasetningu er hér því velt upp ýmsum áskorunum sem fylgja því að setja slíka reglugerð. Ég gat ekki betur heyrt á hæstv. ráðherra en að hann ætli að gera þetta í miklu samstarfi við skólasamfélagið, ef ég heyrði ræðu hæstv. ráðherra rétt og tilsvör þar að lútandi. Gott ef það stendur ekki líka hér. Þá segi ég bara: Ætti hæstv. ráðherra ekki bara að vera búinn að því á þessum tíma þar sem hann er nú kominn með tvö frumvörp fram í þinginu? Hefði ekki bara farið ágætlega á því að hæstv. ráðherra hefði bara verið búinn að eiga samtöl við skólasamfélagið og hefði bara komið með svolítið mótaðar reglur hérna inn? Hæstv. ráðherra þarf enga heimild frá þinginu til að fara í samtal við skólasamfélagið um það hvernig útfæra skuli reglur um að banna eða takmarka símanotkun í skólum. Telji hæstv. ráðherra að svo sé skal ég fullvissa hann um að þess þarf ekki. Hann getur hafist handa strax í dag ef hann hefur ekki þegar hafist handa við þá vinnu. Ég bara hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd, sem fær þetta til umfjöllunar, til að ýta svolítið á ráðuneytið. Hún gæti kannski farið að gera þessi drög og komið með þau samhliða þessari vinnu allri saman.

Að þessu sögðu, virðulegur forseti, hef ég ekki gert það upp við mig hvort ég styðji þetta mál enda treysti ég því bara að vel verði farið yfir það í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég hef fyrir fram efasemdir um að það þurfi að banna svona með einhvers konar lögum frá Alþingi. Svo rann það upp fyrir mér, þegar ég fór að lesa málið betur og fjalla um það, að við erum ekki að banna símana. Ég fór í andsvar við hv. þm. Jón Gnarr sem var ákveðinn í því að frelsið sé gott þangað til maður ákveður að banna eitthvað og að þá sé eins gott að banna það vel og örugglega og hafa bannið mjög skýrt. Það er ekki það sem við erum að gera hér. Mér heyrist þó flestir hér inni vera sammála um að það sé mikilvægt að hafa mjög skýrar reglur um símanotkun í grunnskólum. Þar er ég með í liði og tek heils hugar undir það. Ég ætla því bara að óska hv. allsherjar- og menntamálanefnd góðs gengis í þessari vinnu. Númer eitt, tvö og þrjú vil ég þó hvetja hæstv. ráðherra áfram í sínum málaflokkum. Það er öskrandi þörf á að hæstv. ráðherra komi hér með ákveðin skref í því hvernig við ætlum að bæta menntun barnanna. Það er öskrandi þörf fyrir það og ég hlakka til þegar og ef hæstv. ráðherra kemur með slík mál til umfjöllunar hér í þinginu.