157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[17:31]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ágæta ræðu sem mér fannst stikla með raunsæjum hætti á því hvað þetta felur í sér. Þó vil ég fá að greina frá því að ég er ósammála því að frumvarpið ávarpi ekki að neinu leyti þörf fyrir að styrkja og bæta lagagrundvöllinn. Það kemur beinlínis fram í 3. kafla um meginefni frumvarpsins. Þó svo að í frumvarpinu sé kannski ekki miklu varið í að gera grein fyrir þeirri röskun á trausti sem hefur átt sér stað á milli heimilis og skóla, og þeim ágreiningsatriðum og ágreiningi sem hefur vaknað í tengslum við símanotkun af hálfu nemenda, og inngripa sem þá koma fram af hálfu starfsfólks, hvort sem það eru kennarar eða aðrir, þá er sá vandi sannarlega til staðar og mér finnst mikilvægt að við vanmetum hann ekki.

Ég ætla ekki að lengja þetta meira í umræðunni, þetta er bara 1. umræða og ég vil taka undir með hv. þingmanni að það væri ákjósanlegt að reglugerðardrög lægju fyrir til viðmiðunar vegna þess að hér er líka sagt í 3. kafla að reglugerðin, með leyfi forseta: „endurspegli áskoranir sem tengjast ábyrgri notkun og stafrænni borgaravitund, m.a. þegar kemur að notkun barna á samfélagsmiðlum.“

Ég vil líka taka fram að ég vísaði ranglega til þess að ætlunin væri að gera breytingar á 14. gr. grunnskólalaganna og er því haldið til haga fyrir lögskýringargögnin.

Að endingu vildi ég kannski spyrja hv. þingmann hvort hún væri hlynnt því að setja skorður á samfélagsmiðlanotkun barna undir 15 ára aldri með sama hætti og gert hefur verið m.a. í Ástralíu þar sem aldurinn er 16 ár (Forseti hringir.) og mikil umræða er á norrænum vettvangi um hvort lækka eigi aldurinn verulega.