grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það sem ég les út úr fyrstu setningunni — í 3. kafla greinargerðarinnar, meginefni frumvarpsins, með leyfi forseta, stendur:
„Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem miða að því að styrkja og bæta lagagrundvöll til að setja reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum.“
Þegar ég fór að lesa þessar greinar laganna, þar sem vissulega er reglugerðarheimild og þetta lýtur að skólabrag og þetta er um ýmsa þætti — nú er ég ekki með það fyrir framan mig þannig ég man það ekki nákvæmlega — en ég fór að velta fyrir mér: Getur ekki hæstv. ráðherra sett þetta inn í reglugerð án þess að það þurfi að breyta því með lögum frá Alþingi? Ég lít svo á að þessi setning segi að sérfræðingarnir í ráðuneytinu hafi sagt nei, það færi eiginlega betur á því að þetta færi fyrir þingið. Já, einmitt, ef hæstv. ráðherra ætlaði að setja reglugerðina. Spurning mín er hins vegar bara: Er þörf á því að hæstv. ráðherra setji reglugerð um símanotkun í skólum? Það er það sem ég er að velta fyrir mér. Ekki að ég sé á móti því. Ég segi bara: Flestir skólar hafa gert það. Það sem bent er á hér varðandi útfærsluna og annað lýsir vandamálum sem upp kunna að koma og hafa komið fram í ræðum hv. þingmanna. Það eru einhverjar undanþágur á þessu. Ég meina, tækin eru notuð fyrir fatlaða einstaklinga, tækin eru notuð fyrir börn af erlendum uppruna sem ekki kunna íslensku. Þetta er stundum eina tækið þeirra til að koma skilaboðum til kennara og starfsmanna skólans, þ.e. í gegnum símann sem getur túlkað yfir á íslensku eða ensku. Það er því ýmsum vandkvæðum bundið þegar ná á utan um allt þetta í reglugerð og þess vegna tek ég undir það með hv. þingmanni að ég held að það færi ágætlega á því að sjá þessi drög að reglugerð hér.
Nú man ég ekki hver hin spurningin frá hv. þingmanni var. (DagH: Um samfélagsmiðlana.) Já, um samfélagsmiðlana. Sko, ég veit það ekki. Ég er ekki búin að mynda mér skoðun á því en ég væri ofboðslega til í þá umræðu og mér finnst í rauninni miklu meiri þörf (Forseti hringir.) á þeirri umræðu heldur en þessari umræðu sem hér er. Ég segi því: Við erum svolítið búin að finna lausnir við þessu, skólarnir eru búnir að því en samfélagsmiðlanotkunin stendur enn eftir og við erum ráðalaus í því þannig að ég er alveg tilbúin að taka þátt í umræðunni um að banna notkun slíkra miðla fram að 15 ára aldri.