157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[17:36]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla hins vegar bara að ítreka það sem ég sagði hérna í mínu fyrra andsvari og líka fyrr í dag: Vanmetum ekki hvað ágreiningsefni sem lúta að farsímanotkun á skólatíma hafa valdið miklu tjóni á því mikla trausti sem þarf að ríkja milli heimilis og skóla. Við sem höfum unnið við að leysa úr þessum lögfræðilegu ágreiningsefnum, sem sannarlega fara upp í hæstu hæðir innan sveitarfélaganna, erum meðvituð um að þótt reglurnar séu góðra gjalda verðar og að ekki hafi þurft reglugerðarheimild frá ráðherra til að banna hluti eins og tyggjó eða sælgæti á skólatíma, þá er það nú bara samt sem áður staðan að það er farið að vera verulega mikill kostnaðarauki fyrir starfsfólk sveitarfélaganna að sinna ítrekuðum og endurteknum erindum sem lúta að ósætti um að sími hafi verið tekinn af barni hluta af skóladegi og þar fram eftir götunum. Ég vil því bara brýna það til þeirra sem hafa gefið sig að þessari umræðu að þetta er ekki út í bláinn. Það væri ekki verið að bregðast við ef það væri hreinlega ekki ákall frá bæði skólasamfélaginu og einstökum sveitarfélögum að vera með samræmdar gegnsæjar reglur. Það veitir einfaldlega þeim sem þurfa að grípa inn í með einhvers konar valdboði, hvort sem það eru kennarar eða aðrir, meiri fyrirsjáanleika í sínum störfum að þeir þurfi ekki að verja stórum hluta dagsins í að hreinlega rífast við foreldra um eitthvað. Það er heldur ekkert útilokað hér, svo við tökum nú bara hinn pólinn í hæðina, að einhver grípi inn í og taki síma af barni sem sannarlega þarf á honum að halda til að stunda sitt nám. Ég vil því bara segja: Vanmetum ekki vandann. Vanmetum ekki það hversu brýnt tilefni er til að búa til skýrar og fyrirsjáanlegar reglur sem ég vona að verði afleiðingin (Forseti hringir.) af þessari lagasetningu.