157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[18:20]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir framsöguna um þetta mál sem ég held að ætti að nást ágæt samstaða um í grófum dráttum. Ég hef hins vegar nokkrar spurningar er lúta að nokkrum atriðum hér. Frumvarpið heitir frumvarp um brottfararstöð en það eru þó nokkrar breytingar gerðar á því sem kallað hefur verið móttökustöð, sem eru reifaðar í 22. gr. í lok frumvarpsins. Varðandi móttökustöðina, ef ég spyr um það fyrst: Ég velti fyrir mér hvort hæstv. dómsmálaráðherra hafi hugað að breyttri framkvæmd er kemur að umsóknum um alþjóðlega vernd, þ.e. að gera það að skilyrði — sem ekki er í löggjöfinni í dag, það er kveðið á um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli lögð fram hjá Útlendingastofnun eða lögreglu og ég held að í reyndinni hafi oftast kannski þetta verið lagt fram hjá Útlendingastofnun hérna í Reykjavík. Telur hæstv. dómsmálaráðherra það ekki einnar messu virði að skoða hvort það þyrfti ekki að vera ákvæði um að hafa líka tímafresti til að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd? Það er þannig í mörgum ríkjum að umsókn um alþjóðlega vernd þarf að koma fram um leið og menn stíga fæti í það land sem þeir ætla að sækja um vernd. Það er ekki gert hér þannig að menn geta látið langan tíma líða áður en þeir sækja um vernd.

Þetta er um móttökustöðina, ég kem kannski í seinna andsvari inn á brottfararstöðina.