brottfararstöð.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vona að ég hafi skilið hana rétt, hún er að velta fyrir sér breyttri framkvæmd hvað varðar tímasetningar á því hvenær hægt sé að leggja fram umsókn. Ég hef sagt það og vitna aftur í stefnuyfirlýsinguna að mér finnst vera sjálfsagt markmið að við séum í takti við það sem önnur ríki gera. Mér finnst ekki óeðlilegt að það séu einhverjir frestir þar, þó að það sé auðvitað alltaf háð mati hver fresturinn eigi að vera og hversu stífur hann á að vera.
Ég vil þó segja í þessu samhengi að ég er þá þegar byrjuð í ákveðinni vinnu — af því að það er svo mikill þungi í allri útlendingaumræðunni á umsækjendur um alþjóðlega vernd þegar það er bara einn angi okkar löggjafar um útlendingamál — og hef nefnt það áður í þessum þingsal en ég mun bráðlega kynna skýrslu þar sem gerð var úttekt á íslenska dvalarleyfiskerfinu. Þar erum við með reglur, allt frá því hvað það þýðir að koma til landsins sem au pair yfir í atvinnuleyfi, námsmannaleyfi og sitthvað annað. Ég get ekki svarað fyrirspurn þingmannsins afdráttarlaust um þessa tímafresti sem hún nefnir, ekki öðruvísi en svo að mér finnst í sjálfu sér ekki óeðlilegt að þeir séu einhverjir. Það ætti í sjálfu sér að vera öllum til hagsbóta að svo sé, að það liggi fyrir fyrr en seinna hverjar aðstæður eru þannig að hægt sé að vinna mál í samræmi við það.