brottfararstöð.
Virðulegur forseti. Ég fagna því sem kemur hér fram, að fyrirhugað sé að flytja móttökumiðstöðina svokölluðu, sem er hérna í miðborginni, í nálægð við Keflavíkurflugvöll. Það held ég að sé eðlilegt. Þar er gert ráð fyrir einhverjum kostnaði sem er styrkhæfur í ljósi Schengen-samstarfsins. Hins vegar er kostnaður við brottfararstöðina ekki styrkhæfur í gegnum Schengen-samstarfið. Ég sakna þess að sjá ekki hér ítarlega greint frá kostnaðinum. Það kemur fram í áhrifamatskaflanum að það standi enn þá yfir greining á kostnaði, þ.e. greining á mannaflaþörf og húsnæðisþörf og þvíumlíkt. Einnig er vísað til fjármálaáætlunar. Ég velti því fyrir mér hvort hæstv. ráðherra geti reifað þetta hérna örstutt eða í öllu falli gert ráð fyrir því að það verði óskað eftir þessum upplýsingum, ítarlegum, og eins þeim kostnaði sem ríkissjóður ber nú þegar af umræddum einstaklingum þannig að menn sjái (Forseti hringir.) þennan samanburð. Gerir hæstv. ráðherra ekki ráð fyrir því að geta lagt þetta fram við þinglega meðferð málsins?