brottfararstöð.
Þingmaðurinn vitnar í þann kafla frumvarpsins sem fjallar um kostnaðinn. Í fjármálaáætlun 2026–2030 er framlag til rekstrar brottfararstöðvar upp á 500 millj. kr. Auðvitað er það þannig, svo það sé alveg sagt, að það verður vitaskuld reynt að vinna með nákvæmari hætti við meðferð málsins fyrir allsherjarnefnd. Það leiðir auðvitað af sjálfu sér þegar við erum að tala um glænýtt úrræði að við vitum t.d. ekki með fullkominni vissu hversu margir verða þarna. Það er ekki alveg einfalt mál að segja til um hver endanlegur kostnaður verður. Þó er gert ráð fyrir því að með þessa upphæð verði hægt að fara af stað.
Mér finnst þetta mikilvægur punktur sem hv. þingmaður nefnir; þetta er ekki allt nýr kostnaður því það er hellings kostnaður þá þegar inni í kerfinu við nákvæmlega þennan sama hóp. Með 500 millj. kr. er verið að tala um að geta farið af stað með húsnæði. Það er aðeins á reiki hvaða fjöldi verður á hverjum tíma; það er talað um 20, 30, jafnvel 40. Ég mun sannarlega leggja mig alla fram um það og mitt ráðuneyti að nefndin fái eins nákvæmar upplýsingar um þetta atriði og hægt er að veita.