brottfararstöð.
Virðulegi forseti. Ég verð nú að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir það frumvarp sem hún hefur hér mælt fyrir og ég ætla að byrja á að taka það fram að ég styð það heils hugar. Sjálfstæðisflokkurinn, þingflokkur Sjálfstæðisflokksins, styður þetta mál heils hugar enda er hér nánast sama frumvarp lagt fram og ég var með á þingmálaskrá minni fyrir ári síðan. Ég get ekki séð að frumvarpið hafi tekið neinum stórkostlegum breytingum. Samt eru þær nokkrar og mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra fyrst að því af hverju ráðherra leggur til að starfsfólk brottfararstöðvar fái sjálfstæðar valdheimildir líkt og í ákvæði laga um fullnustu refsinga, eins og gert var í frumvarpi til laga um lokuð búsetuúrræði? Er ekki ljóst að með því er verið að færa valdheimildir nær daglegu starfsfólki án sama réttaröryggis og áður tryggði að beiting valds væri skýr, rökstudd og eftirlitsskyld? Með öðrum orðum, ég er að gera athugasemdir við að hér séu ekki fangaverðir sem eiga að starfa í þessu úrræði og hvort valdheimildir séu skýrar ef þannig aðstæður skapast í þessu úrræði að það starfsfólk sem þar starfar búi yfir nægilegri þekkingu hvað valdheimildir varðar og eigi ekki á hættu að óttast um öryggi sitt.