brottfararstöð.
Virðulegur forseti. Ég þakka stuðninginn. Það er gott að heyra hv. þingmann, formann Sjálfstæðisflokksins, lýsa því yfir að allur hennar þingflokkur ætli að styðja frumvarpið. Það er alveg rétt. Hugmyndir á þessum nótum hafa áður legið fyrir á þingmálaskrá og ekkert nema gott um það að segja. Ég man eftir þessu máli á þingmálaskrá og mig minnir að það hafi farið í samráðsgátt. En ég held nú að hv. þingmaður, sem þá var dómsmálaráðherra, hafi aldrei farið með málið fyrir ríkisstjórn. Er það ekki rétt munað? Og aldrei kom það hér til þings? Varðandi valdheimildirnar eru þær skýrt afmarkaðar í frumvarpinu og liggja fyrir. Tilteknir starfsmenn brottfararstöðvar geta þurft að beita valdi í tilteknum aðstæðum teljist það nauðsynlegt. Í ákvæðinu er líka útlistað hvaða tilvik þetta eru. Það þarf að hindra að vistmaður skaði aðra eða sjálfan sig eða til að verjast yfirvofandi árás. Mér finnst það því ekki vera kjarnaatriði í málinu hvað sá starfsmaður heiti heldur hvaða heimildir hann fær til að beita. Það starfsfólk brottfararstöðvarinnar sem talið er nauðsynlegt að hafi þessar heimildir fær einmitt akkúrat viðeigandi þjálfun í þeim tilgangi. Það er auðvitað algjört kjarnaatriði að hvort sem fólk vinnur á heilbrigðisstofnun, í fangelsi eða úrræði sem þessu — í sumum störfum fylgja valdbeitingarheimildir og þá er algjört kjarnaatriði að menn hljóti viðeigandi þjálfun. Verði þetta frumvarp samþykkt mun ráðherra setja reglugerð um þær kröfur sem gerðar eru til þjálfunar og námskeiða fyrir starfsfólk á staðnum.
Annar munur líka, af því að hv. þingmaður nefnir að hún hafi verið með mál keimlíkt þessu á þingmálaskrá, þá lögðum við mikla áherslu á það í vinnu við úrræðið núna að fylgja norskri fyrirmynd.