157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[18:33]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla bara að taka undir með hv. þingmanni hvað það varðar að starfsfólk dómsmálaráðuneytisins hefur unnið mikla vinnu og góða vinnu. Ég held að við séum sammála um það hversu gott starfsfólk við eigum í dómsmálaráðuneytinu. Mér fannst líka áhugaverður punktur sem hv. þingmaður nefnir um fjölda móttökumiðstöðva í Noregi. Hið sama er uppi á teningnum í Svíþjóð og Danmörku. Það á líka við um þessi brottvísunarúrræði að við erum vegna fámennis okkar að tala um eitt og eitt úrræði og getum, held ég, í krafti fámennisins unnið þetta með persónulegum og mannlegum hætti. Ég get staðfest það sem hv. þingmaður spyr um varðandi greiningar við móttöku og vísa þar ekki síst til skimunarreglugerðarinnar sem er verið að innleiða þar sem við förum af meiri krafti inn í þetta, annars vegar hvað varðar bakgrunn; að kanna hvort skilríki séu rétt og annað í þeim dúr en líka að athuga heilsufarsbakgrunn, heilsufarssögu og sérstaklega hvort einstaklingar teljist í viðkvæmri stöðu.