brottfararstöð.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina. Ég verð að byrja á því að segja að frumvarpið kemur mér aðeins á óvart. Hæstv. ráðherra kom á fund Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og ræddi málið og tók við spurningum þar og á þakkir skildar fyrir það. Ég stóð í þeirri meiningu að hér væri um að ræða frumvarp um brottfararstöð einvörðungu en ég hef áhyggjur af því að hér sé fyrsta skrefið í því að safna saman öllum úrræðum hælisleitenda á einn stað. Ráðherra nefndi í yfirferð sinni að það kæmi til greina að neyðarskýli Rauða krossins yrði þarna einnig, (Gripið fram í: Nei. )ef ég heyrði rétt hjá hæstv. ráðherra. Síðan er einnig fjallað í frumvarpinu um móttökustöð. Þess vegna langar mig að spyrja, bara til að vera alveg viss um að ég sé ekki að misskilja, virðulegi forseti: Erum við ekki bara að tala um brottfararstöð í þessu frumvarpi?
Síðan langar mig að spyrja hæstv. ráðherra líka út í samráð við sveitarfélögin vegna þess að eins og flestir vita hefur þungi málaflokksins lagst hlutfallslega mjög þungt á sveitarfélög á Suðurnesjum. Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa brugðist mjög vel við því á undanförnum árum, staðið sig mjög vel. Þess vegna kemur fram einmitt út af því í umsögn Reykjanesbæjar og fagfólks um málið að það þurfi að gera samfélagslegt áhættumat um hvað þetta þýði fyrir samfélagið svo að innviðirnir séu að sjálfsögðu til staðar og samvinnan góð. Þetta tvennt langar mig að spyrja hæstv. ráðherra út í.