brottfararstöð.
Virðulegi forseti. Það er réttur skilningur hv. þingmanns og í samræmi við það sem við ræddum á fundi á Suðurnesjum um daginn, sem mér fannst mjög góður, að þetta frumvarp fjallar eingöngu um þetta úrræði, brottfararstöð. Þarna erum við jafnframt að innleiða tilskipun um skimanir og það að við ætlum að skima fólk við komu þýðir ekki sjálfkrafa að þar verði fólk vistað, þannig að sá er munurinn. En við erum að tala um að færa það eins framarlega í ferlið og verið getur. Allar ákvarðanir um staðsetningu þessa úrræðis á eftir að taka þannig að það er ekki svo að hér sé verið að boða það sem augljósan sannleik að þetta húsnæði verði þarna heldur var verið að benda á samlegðina í því að vera með öll þessi úrræði og þau vinni í takti, en sannarlega að skimunin færi fram strax við komu. Það sem ég nefndi um neyðarskýlið var hins vegar þetta: Með því að við setjum á fót þetta úrræði, brottfararstöð, erum við í stöðu til þess að þurfa ekki lengur að vera með neyðarskýli. Þannig að ég var ekki að tala um það og ég vil árétta það sérstaklega, enginn er að tala um flutning á neyðarskýlinu á Suðurnesin.