157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[18:39]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að játa að ég heyrði ekki upphafsspurninguna, laut hún að því hvort úrræðið væri lokað. (JFF: Já. )Eins og ég segi, þetta er úrræði sem kemur til í þeim tilvikum þar sem þarf að tryggja viðveru, tryggja að fólk verði á staðnum, þannig að þetta er lokað. Brottfararstöð verður lokuð í samræmi við það sem við ræddum einmitt á þessum góða fundi, sem mér fannst býsna gott samráð, svo það sé sagt, við sveitarfélögin á svæðinu. Ég er reiðubúin til frekara samtals og átta mig auðvitað á því að í þeirri vinnu sem kemur í kjölfarið þarf t.d. að ræða frekar hvað felst í skimunum. Þá vil ég aftur árétta að þar erum við að tala um skimunina sjálfa, ekki vistun á fólki. Hugmyndin eins og hún var rædd á þessum góða fundi okkar um daginn er hin sama og birtist í frumvarpinu.