157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[18:40]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ísland er réttarríki. Við setjum lög til að vernda frelsi og öryggi borgaranna. Lögin verða að gilda í reynd og allir, hvaðan sem þeir koma, þurfa að fara eftir lögunum. Þannig nálgaðist Sjálfstæðisflokkurinn útlendingamál þegar ég fór með þau í dómsmálaráðuneytinu. Við tókum ákvarðanir, stilltum af verklag, samræmdum lögin og færðum regluverkið nær því sem gildir á Norðurlöndum. Niðurstaðan sást strax, umsóknum um alþjóðlega vernd hefur fækkað um 70% frá árinu 2023. Það er mælanlegur árangur, ekki slagorð. Þetta var ekki tilviljun. Ríkisstjórnin mótaði heildarsýn, skýra stefnu sem átti að fækka tilhæfulausum umsóknum, stytta málsmeðferð, samræma reglur við Norðurlönd og verja innviði. Við gerðum það.

Við komum breytingum á útlendingalögum í gegnum Viðreisn sem stóð í vegi fyrir þeim ásamt fleirum. Í dag ræðum við úrræðið sem tryggir lokaskrefin þegar aðrir klára ekki málin. Þegar dómur liggur fyrir eða ákvörðun er endanleg þá þarf ríkið að geta haldið fólki til staðar þar til brottflutningur fer fram. Ég lagði upphaflega til lokað búsetuúrræði af því að Ísland var eina Schengen-ríkið án slíks lögbundins úrræðis. Tilgangurinn var tvíþættur, að tryggja framkvæmd brottfarar með festu og vernda mannréttindi með skýru réttaröryggi. Það var stefna Sjálfstæðisflokksins. Hún var skýr og hún er skýr. Nú liggur fyrir frumvarp ráðherrans um svokallaða brottfararstöð. Ég tek undir markmiðið. Við þurfum varanlegt úrræði, við þurfum lokaskrefið sem virkar í reynd en við þurfum líka að gera þetta rétt. Rétt er það sem stenst dómaframkvæmd, stenst eftirlit og stenst samanburð við Norðurlönd. Annars erum við að búa til ný vandamál.

Á árunum áður en við tókum af skarið fjölgaði umsóknum gríðarlega. Ísland var hlutfallslega of veikur hlekkur og innviðir báru ekki þungann. Við breyttum skilaboðunum út á við og færðum reglurnar nær norrænu vinaþjóðunum og forgangsröðuðum framkvæmd. Við vorum með skýrt markmið um að minnka seguláhrifin sem voru búin að veikja íslenska regluverkið. Ný lög um útlendinga voru samþykkt sumarið 2024 með þessum tilgangi, að draga úr séríslenskum lagaákvæðum, ná niður kostnaði, vera með skilvirkari brottflutning og þar með styrkja allt kerfið. Það skilaði sér í fækkun umsókna og meiri stjórn. Þetta gekk allt eftir og niðurstaðan er skýr. Fyrir liggur að við þurfum úrræði sem gerir okkur kleift að framfylgja lögunum fljótt, löglega og mannúðlega. Réttarríkið þarf að vinna hratt. Boðleiðir eiga að vera skýrar. Eftirlit á að vera skýrt og ábyrgðin verður að vera skýr. Ef ríkið grípur til íþyngjandi aðgerða verða að vera ljós tímamörk og endurskoðun. Annars tefjast málin óþarflega sem getur haft slæm áhrif á allt kerfið. Við ætlum ekki að hafa vægari reglur en nágrannaríkin. Við ætlum að hafa sambærilegar reglur og betri framkvæmd. Þá þurfum við að setja hagsmuni almennings í fyrsta sæti. Úrræðið á að verja öryggi, draga úr óþarfakostnaði og verja trúverðugleika kerfisins. Lög sem ekki er hægt að framkvæma eru gagnslaus.

Ég ætla að nefna tvö atriði sem verða að skýrast í frumvarpinu áður en Alþingi samþykkir þau. Hið fyrra er yfirstjórn og fagleg umgjörð. Ábyrgðin er færð að mestu til Suðurnesja. Það getur verið hagkvæmt í framkvæmd en þá verða að fylgja bindandi kröfur um þjálfun, verklag, skráningu og gagnsæi. Þetta er ekki formsatriði, þetta ver starfsmenn. Þetta ver þá einstaklinga sem dvelja í úrræðinu. Þetta ver hagsmuni ríkisins. Við eigum að stilla þetta við það sem Norðurlöndin gera og sem íslensk stjórnvöld hafa þegar boðað í opinberri stefnu um landamæri og móttöku, t.d. þeirri sem var samþykkt í nóvember 2024.

Svo í öðru lagi þá verðum við að vera með innleiðingu sem byrjar í raun ekki í ræðu. Við þurfum dagsetta framkvæmdaáætlun, plan um húsnæði, starfsfólk, verklagsreglur, áætlun um samspil við móttökumiðstöð og kerfið allt. Við höfum séð það áður að góð lög án tilbúinna innviða fresta vandanum í stað þess að leysa hann. Heildarsýnin frá 2024 gerði ráð fyrir þessu. Nú þurfum við að loka hringnum. Kjarni málsins er þessi: Þetta er mál Sjálfstæðisflokksins. Við settum málið á dagskrá, leiddum heildarsýnina, færðum regluverkið nær Norðurlöndunum og náðum mælanlegum árangri í fækkun umsókna. Við verðum dæmd eftir verkum. Verk okkar er að fækka umsóknum, stytta málsmeðferð og verja innviði. Við fögnum því að aðrir flokkar færist á rétta braut í þessum málaflokki en við viljum meira en orðin innantóm. Við gerum einfaldlega þá kröfu að lögin virki og þetta úrræði verður því að virka.

Virðulegi forseti. Við þurfum að vera trúverðug í þessum málaflokki. Sjálfstæðisflokkurinn sýndi að það er hægt að fækka umsóknum, stytta málsmeðferð og verja innviði án þess að gefa afslátt af réttlátri málsmeðferð. Við gerðum það þegar við settum ný lög 2024 og mótuðum heildarsýn í málaflokknum í febrúar 2024 . Það skilaði árangri. Nú eigum við að samþykkja brottfararúrræði sem er jafn sterkt í framkvæmd og það er í orði; úrræði sem stenst lög og reglur og lýkur málum hratt og heiðarlega. Ég styð markmiðið um brottfararúrræði en ég mun beita mér fyrir breytingum sem gera frumvarpið að öflugu verkfæri, ekki veikri stofnun. Það er stefna Sjálfstæðisflokksins. Það er í þágu fólksins í landinu, það er í þágu íslensks réttarríkis. Það verður áhugavert að fylgjast með þessu máli í meðförum hv. allsherjar- og menntamálanefndar. En ég endurtek það sem ég sagði hér fyrr í dag að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins mun styðja þetta mikilvæga mál.