157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[18:48]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska hæstv. ráðherra til hamingju með þetta mál sem ég hygg að sé til bóta í löggjöf okkar um útlendingamál og fagna því. Ég reyndar viðurkenni það, virðulegur forseti, að ég er ekki búin að lesa það alveg spjaldanna á milli en treysti því að hv. allsherjar- og menntamálanefnd muni fara vel og vandlega yfir málið.

Ég tek undir með hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Þetta er mikilvægt mál sem búið er að vinna að í einhvern tíma og ég held að það ætti öllum að vera ljóst að það er nauðsynlegt að við séum með brottfararstöð hér á landi. Einhverjir töldu ekki þörf á því fyrir einhverjum misserum síðan, kannski átti fólk von á því að við værum svo lítil að við værum að taka á móti fáum, það væru það fáir sem myndu vera í slíku úrræði að það svaraði ekki tilkostnaði. Ég minnist þess nú þegar ég sat í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og við heimsóttum fangelsi landsins og ræddum við fangelsismálastjóra að þá heyrði það til algerra undantekninga að aðilar sem væru sem sagt í þessari stöðu sem þetta brottfararúrræði er ætlað að taka á, þ.e. aðilar sem höfðu fengið endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd og neituðu að fara af landi brott, væru vistaðir í fangaklefum. Það er ekki lengra síðan en kannski þrjú, fjögur ár og þá var þetta svarið. En við sjáum hér í greinargerðinni og við höfum heyrt af því og ég hef heyrt í fangavörðum sem segja að þetta sé orðið daglegt brauð að þau séu að vista fólk í þessari stöðu. Ég bara tek undir það að það er mikilvægt að fangelsin okkar séu nýtt fyrir það sem þau eru byggð fyrir, þ.e. að taka á móti þeim aðilum sem dæmdir hafa verið af íslenskum dómstólum til að sitja inni og ég held að það sé kannski ekki síður það sem kalli á þetta úrræði.

Virðulegur forseti. Ég hef reyndar talað fyrir fleiru en brottfararstöð. Ég hef líka talað fyrir móttökustöð, eins og hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir kom aðeins inn á, þessari norsku leið sem við í hv. allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta kjörtímabili kynntum okkur ágætlega þegar við heimsóttum bæði Noreg og Danmörku. Í Danmörku fórum við einmitt í slíka móttökustöð. Og fyrir ekki mörgum árum, bara örfáum árum síðan, þá var þetta nú umræða sem hugnaðist fólki almennt ekki, fólki fannst þetta einhvern veginn kaldranalegt og ekki nógu manneskjulegt að bjóða upp á þessi úrræði. En ég held að þau séu nauðsynleg og eins og hæstv. ráðherra kom ágætlega inn á þá erum við eina Schengen-ríkið sem er ekki með svona brottfararstöð.

Mig langar líka, virðulegur forseti, að hvetja hæstv. ráðherra áfram í því að horfa til norrænna fyrirmynda og halda áfram á þeirri vegferð sem mörkuð var á síðasta kjörtímabili undir forystu hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur þegar hún var í dómsmálaráðuneytinu og hv. þm. Jóns Gunnarssonar þar á undan þar sem við vorum einmitt að horfa til þessara þátta, reyna að læra af því sem nágrannar okkar á Norðurlöndunum höfðu verið að takast á við og passa að aðlaga okkar kerfi að því sem þekkist þar. Það er ekki síst vegna þess að við erum auðvitað með ofboðslega gott velferðarkerfi hér á Íslandi og við þurfum einfaldlega að standa vörð um það. Við getum ekki verið með einhvers konar annað regluverk sem með einhverjum hætti togar fólk í þessari stöðu frekar til Íslands en til annarra landa. Ég ætla að fá að segja þetta bara hreint út. En þegar ég sagði þetta fyrir tveimur árum síðan þá var því illa tekið.

Virðulegur forseti. Ég ætla að leyfa mér að hafa hér eftir brot úr ræðu hv. þm. Hönnu Katrínar Friðriksson, sem er hæstv. ráðherra í dag, sem þá var þingflokksformaður Viðreisnar. Þetta var við atkvæðagreiðslu um útlendingafrumvarpið, breytingar á útlendingalögum, mál sem tók ansi langan tíma í umræðu á Alþingi og þurfti mikið afl okkar sem skipuðum meiri hluta á síðasta kjörtímabili til að ná því í gegn. Þetta er fyrri breytingin, frumvarp sem kom frá þáverandi hæstv. ráðherra, Jóni Gunnarssyni. Þá sagði, með leyfi forseta, þingflokksformaður Viðreisnar:

„Herra forseti. Þegar fólk leitar hingað eftir vernd vegna þess að lífi þess og öryggi er ógnað í heimalandi þess þá berum við bæði lagalega og siðferðilega skyldu til að bregðast við. Þeir flokkar sem hér munu greiða þessu máli atkvæði sitt verja ákvörðunina með því að svo breytt útlendingalög muni létta álagi á innviði Íslands. Það er rangt. Þess í stað er fyrirsjáanlegt að álag á félagslegt kerfi sveitarfélaga og álag á lögreglu mun aukast. Nær 80% umsækjenda um alþjóðlega vernd koma hingað frá Úkraínu og Venesúela og fá sjálfkrafa og með réttu dvalarleyfi. Frumvarpið snertir lítið á stöðu þeirra. Það mun hins vegar hafa vond áhrif á hinn hópinn, minni hluta umsækjenda, opnar fyrir að heimilislausum muni fjölga og að ýmis önnur neyð, jafnvel til þessa lítt þekkt í samfélagi okkar, muni blasa við þeim. Þetta, herra forseti, er vond framtíðarsýn. Þetta er ekki leiðin að góðu, mannúðlegu og skilvirku kerfi í allra þágu. Þingflokkur Viðreisnar leggst alfarið gegn því að frumvarpið verði samþykkt.“

Þetta hafði þáverandi þingflokksformaður Viðreisnar að segja um breytingar á útlendingalögum sem loksins náðust í gegnum þingið og þurfti mikið afl til.

Virðulegur forseti. Ári síðar kom þáverandi hæstv. dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, með enn frekari breytingar á lögunum. Ég ætla að ítreka, virðulegur forseti, að allt sneri þetta að því að aðlaga kerfi okkar að því sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Þá sagði formaður Viðreisnar, núverandi hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, við atkvæðagreiðsluna um það mál, með leyfi forseta:

„Virðulegi forseti. Við í Viðreisn höfum lagt áherslu á samhljóm og ekki síður samvinnu í þessum viðkvæma málaflokki, þvert á flokka. Við höfum undirstrikað mikilvægi þess að við sameinumst um skynsamlega, mannúðlega en líka raunsæja löggjöf. Við þurfum öll að sýna ábyrgð í þessum efnum. Við þurfum að koma í veg fyrir skautun í samfélaginu. Rammarnir þurfa líka að vera skýrir þegar kemur að þessum málum og ekki síst þurfa þeir að þola ríkisstjórnar- og ráðherraskipti þannig að hér verði ekki hentistefna við framkvæmd útlendingastefnu. Við þurfum að tryggja skilvirkni og mannúð og ég tel að það sé margt í þessu frumvarpi sem hægt er að skilja og styðja en annað sem hefði átt að vinna betur með til að ná markmiðum einmitt um skilvirkni og mannúð.“

Hér sést afstaða Viðreisnar breytast töluvert bara á einu ári. Þingflokkur Viðreisnar hafnaði sem sagt breytingum í fyrra skiptið en studdi hluta af breytingunum í seinna skiptið, ekki allt. Og nú erum við komin með enn annað og nýtt skref hjá Viðreisn þar sem þau eru nú með dómsmálaráðherra sem heldur bara áfram á sömu vegferð. Batnandi mönnum er best að lifa og gott þegar fólk skiptir um skoðun. Ég styð það. Hér hefur greinilega mikill lærdómur átt sér stað og ljóst að verið er að fylgja nákvæmlega því sem við mörkuðum hér á síðasta kjörtímabili, að horfa til reynslu hinna Norðurlandanna.

Ég bíð reyndar spennt eftir því þegar hæstv. ráðherra kemur líka með frumvarp um dvalarleyfi því að þar hef ég ákveðnar efasemdir. En ég ætla að gefa hæstv. ráðherra svigrúm til þess að kynna það fyrir okkur. Mér finnst gengið ansi langt í umfjöllun og umræðu um þau mál, hvernig verið sé að misnota dvalarleyfisumsóknarkerfið. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að það hvernig talað er núna af hæstv. dómsmálaráðherra er í algjörri andstöðu við það hvernig þingmenn þess flokks töluðu hér á síðasta kjörtímabili. Þingmenn þess flokks voru jafnvel að gagnrýna þann þingmann sem hér stendur, eða aðra þingmenn sem þá voru í meiri hluta, fyrir það hvernig orðræðan var. Hér hefur orðið algjör U-beygja.

Virðulegur forseti. Ég held að það sé bara þarft og gott því þetta er málaflokkur þar sem við verðum að vera vakandi fyrir afleiðingunum. Við verðum að bera skynbragð á það hvaða áhrif þetta hefur á samfélag okkar en á sama tíma eigum við auðvitað að tala af mannúð en líka raunsæi.

Virðulegur forseti. Ég hygg því að ég muni styðja þetta frumvarp. Eins og ég segi, það er margt jákvætt í því en ég hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að fara yfir það af mikilli kostgæfni því þetta er flókið. Ég er ánægð með að það sé verið að horfa til Noregs í þessum efnum því að það sem ég hef kynnt mér af þessum stefnum Norðurlandanna — það er alveg eins og hæstv. ráðherra sagði áðan í ræðu, það eru ekki allir með nákvæmlega sömu forskriftina en keimlíka — þá hefur mér fundist Noregur hafa náð að sigla svolítið rétta leið í þessum efnum. Því vil ég bara hvetja hæstv. ráðherra í að halda áfram að horfa til hinna Norðurlandanna og kannski sérstaklega Noregs. En það er líka hægt að horfa til Danmerkur í þeim efnum þegar kemur að móttökustöðvum. Í mínum huga er það fyrst og fremst hugsað til að auka öryggi þeirra sem hingað koma. Mér fannst þeir fulltrúar sem við heimsóttum og fóru yfir móttökustöðina sem var í Danmörku útskýra það vel fyrir okkur þar sem hún er rekin af Rauða krossinum. Ég hef heyrt það í fréttum og við væntanlega munum sjá það í umfjöllun um þetta mál að mannréttindasamtök hafa áhyggjur. Ef ég las fréttir rétt núna í kvöld þá voru strax einhverjir, hvort það var Kvennaathvarfið og einhverjir fleiri, búnir að lýsa miklum áhyggjum af því sem hér liggur undir. Ég held að það þurfi að skoða þau mál alveg sérstaklega því að við vitum, herra forseti, að því miður er staðan sú að fólk í þeirri viðkvæmri stöðu sem hælisleitendur eru eða þeir sem sækja hingað vernd eru oft fórnarlömb mansals. Því er mjög mikilvægt að kerfið okkar taki utan um fórnarlömb í þeirri stöðu og veiti eins mannúðlega og góða þjónustu og hægt er.

Ég sé hér líka og ég veit að það hefur aðeins fengið umfjöllun, ég hygg að það komi nú til umfjöllunar hér líka, kannski við 2. umræðu, þ.e. staða barna og vistun barna í þessu úrræði. Ég man það líka, og ég held að það hafi nú verið rifjað upp í fréttum, að formaður Viðreisnar, hæstv. ráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ítrekaði að Viðreisn gæti mögulega stutt svona brottfararstöð en aldrei þar sem börn væru vistuð. Mér fannst hæstv. dómsmálaráðherra færa ágætisrök fyrir því að það væri mikilvægt í einhverjum tilfellum. Þá gætum við þurft að fara þá leið þó að ég telji að hún sé auðvitað aldrei ákjósanlegasta leiðin en það sé betra að börn dvelji með foreldrum sínum í slíku úrræði heldur en hjá vandalausum. Ég geri ekki athugasemdir við að það kynni í einhverjum tilfellum að vera svo.

En að því sögðu, virðulegur forseti, þá finnst mér líka mjög mikilvægt að við förum yfir þann árangur sem náðst hefur í þessum málaflokki, þessi tvö stóru mál sem við afgreiddum á síðasta kjörtímabili — ég fór nú yfir afstöðu Viðreisnar á þeim tíma til þeirra mála — og hversu miklu þau hafa skilað okkur. Þau hafa ekki skilað því sem hér var óttast, að þetta myndi ekki létta á kerfinu og yrði til þess að keyra félagskerfi sveitarfélaganna í þrot og störf lögreglunnar og annað. Það hefur ekki sýnt sig. Það hefur nákvæmlega sýnt sig hið gagnstæða. Þetta hefur létt á kerfinu okkar. Hér hefur umsækjendum um alþjóðlega vernd fækkað mjög verulega og við höfum mun betri stjórn á þessum málaflokki nú en við höfðum áður. Það er vegna þess að við höfðum dug og þor í að fara í þessa viðkvæmu en mikilvægu umræðu og gera þær breytingar sem þurfti að gera. Það höfðu ekki allir þann dug og það þor á þeim tíma þegar þeir voru í stjórnarandstöðu (Gripið fram í.)og nýttu sér það. Hv. þm. Sigmar Guðmundsson situr hér á móti mér og veit að ég er að hluta til að beina orðum til hv. þingmanns sem sat með mér í hv. allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta kjörtímabili. En orðum mínum er ekki eingöngu beint til hv. þm. Sigmars Guðmundssonar heldur líka til hæstv. dómsmálaráðherra núverandi og í rauninni alls þingflokks Viðreisnar og Samfylkingarinnar líka. Það varð mikil umbylting og breyting sem átti sér stað við formannsskipti hjá Samfylkingunni og við heyrðum að þá var sleginn nýr tónn hjá þeim flokki. Ég fann í rauninni til með vinum mínum í Vinstri grænum sem við þurftum vissulega að toga í þessa átt á síðasta kjörtímabili en þau sáu þó hversu mikilvægt það væri. Það var nú töluvert sparkað í þann vinstri flokk fyrir að ætla að styðja Sjálfstæðisflokkinn í þessari vegferð sem nú virðast allir vera sammála um.

Virðulegur forseti. Ég óska hv. allsherjar- og menntamálanefnd góðs gengis í að fara yfir þetta mikilvæga mál og vona að okkur takist að afgreiða það sem lög frá Alþingi.