157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[19:02]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég kem hér upp til að taka þátt í umræðu um þetta mál og gera aðeins grein fyrir afstöðu minni til þessa máls og annarra líka sem tengjast. Það hefur alltaf verið skoðun mín, og reyndar hygg ég að það eigi við um flesta í mínum flokki, að þegar við erum að tala um útlendingamálin þá þurfum við auðvitað að tala um þau á breiðum grunni, þ.e. ekki bara út frá hælisleitendum. Það er oft verið að tala um útlendingamálin og álag á innviði og blandað saman hælisleitendum og þeim sem koma hingað til að vinna í gegnum EES-samstarfið okkar. Það er eitt sem hefur oft og tíðum truflað umræðuna, það liggur alveg í hlutarins eðli að þessu þurfum við að einhverju leyti að halda aðskildu. En síðan hefur það auðvitað alltaf verið afstaða okkar flokks að Ísland getur aldrei verið alveg opið en það verður heldur aldrei alveg lokað.

Það hefur líka alltaf verið afstaða okkar flokks að einmitt vegna þess að landið er ekki alveg opið þá verða alltaf einhverjir sem hér koma og sækja um vernd sem fá synjun og þá er það spurningin: Hvað gerist þegar sá tímapunktur er kominn? Það liggur bara í hlutarins eðli að það er alltaf hluti af fólki sem hingað leitar sem fær synjun. Það liggur líka fyrir og er ekkert um það deilt að lítill hluti af þeim sem fá synjun neitar að verða við fyrirmælum stjórnvalda, lögmætum fyrirmælum stjórnvalda. Þá er það spurningin, eins og hæstv. dómsmálaráðherra fór ágætlega yfir: Í hvaða stöðu erum við þá? Þá erum við með hóp fólks, reyndar ekki mjög stóran, sem kerfið okkar er búið að meta og komast að þeirri niðurstöðu að eigi að fara en það vill ekki fara. Þessi hópur þarf þá annaðhvort að vera hér í samfélaginu til lengri tíma án þess að eiga rétt á viðhlítandi heilbrigðisþjónustu, án þess að hafa aðgang að skólakerfinu eða velferðarþjónustu og þarf þá að reiða sig á aðstoð sem veitt er utan hins hefðbundna kerfis. Það geta t.d. verið mannúðarsamtök ýmiss konar sem vinna auðvitað frábært starf en það segir sig alveg sjálft að það getur enginn verið í þeirri stöðu lengi. Þess vegna er það alveg hafið yfir allan vafa og þess vegna er það svo að öll Schengen-ríkin hafa gripið til svipaðs úrræðis, að það sé þá brottfararstöð sem grípi þennan tiltekna hóp. Þetta er mjög afmarkaður hópur. Þetta er í raun og veru undantekningin en eitthvað verður að gera því að ekki ætlum við að koma málum þannig fyrir að við gerum ekki neitt með þennan hóp. Þá er hann hálfréttindalaus og háður mannúðarsamtökum hér, jafnvel árum saman. Það er ekki gott og þess vegna er gripið til þessa úrræðis sem við erum að ræða hér, brottfararstöðvar. Ég held að það séu allir sammála um að þetta eru svona ákveðin jaðartilvik. Þau eru ekki mjög mörg en við erum líka, held ég, mjög sammála um að það verður að vera þannig að þetta úrræði sé mannúðlegt og að það sé reynt að hafa það eins gott út frá mannúðarsjónarmiðum og kostur er.

Við skulum hins vegar ekki vera að tala eins og það sé einhver skemmtiganga að fara í þetta úrræði. Þetta er mjög íþyngjandi. Þetta er lokaúrræði. Það eru mjög miklar takmarkanir á því sem fólk getur gert. Við erum auðvitað að reyna innan þeirra takmarkana að búa þannig um hnútana að þegar um fjölskyldufólk er að ræða að þá geti fjölskyldan verið saman, að það séu tómstundir og einhver umsjá fyrir börnin í þennan stutta tíma sem þau eru þar. En það er ekki, finnst mér, þó að þetta sé lokaúrræði, hægt að nota orðið fangelsi um þetta vegna þess að í raun og veru hefur fólk ákveðið sjálfdæmi um það hvort það fer þarna inn eða ekki vegna þess að hinn möguleikinn er alltaf til staðar, þ.e. að fá aðstoð íslenskra stjórnvalda við það að komast í burtu. Ég endurtek: Þetta er auðvitað bara hugsað fyrir þann fámenna hóp sem fær ekki vernd og vill ekki sinna tilmælum stjórnvalda hér eftir að það lögformlega ferli er að baki.

Við höfum hins vegar alltaf haldið því mjög til haga í okkar flokki, af því að við erum líka að tala svolítið um þennan málaflokk almennt, að það sé gott að það náist meiri sátt um útlendingamálin í íslensku samfélagi. Mig langar í því samhengi, vegna þess að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir var með langan fyrirlestur um það sem Viðreisn hefur gert og sagt í gegnum tíðina, að benda á að á síðasta kjörtímabili ritaði formaður Viðreisnar bréf til þáverandi forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, og hvatti til þess að það yrði reynt að ná meira samkomulagi um þennan málaflokk í heild sinni. Það var vel tekið í það. Sú vinna fór af stað og ég man að hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, sem þá var dómsmálaráðherra, tók þátt í þeirri vinnu. Það gerði líka hæstv. félagsmálaráðherra sem þá var úr röðum VG og það myndaðist sem sagt þessi hópur sem fundaði nokkrum sinnum. Svo held ég að sú vinna hafi fjarað að einhverju leyti út án þess, held ég alveg örugglega, að það hafi endilega verið ætlun eins eða neins. Það var a.m.k. að kvikna einhver sameiginlegur þráður á milli flokkanna um að það gæti verið gott að vinna þessi mál í meiri sátt. Það náði hins vegar ekki fram að ganga. Það sem við höfum verið að gagnrýna, og ég get alveg endurtekið það hér í framhaldi af ræðu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, er auðvitað hvernig staðið var að þjónustusviptingunni á sínum tíma enda munum við sumarið þar sem það allt saman nánast kom til framkvæmda hver viðbrögð sveitarfélaganna voru á sínum tíma við því og það ástand sem myndaðist. Þarna var auðvitað bara um það að ræða að þarna voru hlutir ekki nægjanlega vel útfærðir.

Síðan varðandi útlendingafrumvarpið sem hér hefur líka verið vísað til þá vorum við sammála sumu af því sem þar var, kannski einkum og sér í lagi því sem sneri að styrkingu kærunefndar útlendingamála. En við höfðum ákveðnar efasemdir um þær útfærslur sem voru gagnvart fjölskyldusameiningum, fannst þar of langt gengið, þannig að við studdum ekki málið, greiddum heldur ekki atkvæði gegn því en við vildum ekki vera á græna takkanum í því af þeim ástæðum sem ég er hér að rekja. Ég held að þetta séu bara mjög málefnaleg sjónarmið en það sem við höfum alltaf gert, alltaf, er að reyna að hvetja, ekki síst þingmenn og stjórnmálaflokka, til þess að tala gætilegar um þennan viðkvæma hóp heldur en oft er gert. Mér finnst raunverulega að samstaða um þetta og einhver árangur í því að draga úr hörkunni í umræðu um þennan málaflokk sé í raun og veru það sem skiptir kannski ekki síður máli heldur en regluverk. Öll viljum við auðvitað að regluverkið sé mannúðlegt. Ég tel að þótt þetta úrræði sem við ræðum hér sé íþyngjandi þá sé það mannúðlegt og nauðsynlegt en ég held að við öll í þessum sal hljótum að geta fallist á að við megum ekki gefa þann tón út í samfélagið að það sé of hörð umræða um fólk sem kemur hingað í neyð og sækir til Íslands í leit að betra lífi. Það er auðvitað fullt af fólki úti um allan heim sem er að því og við viljum taka á móti fólki og styðja eftir fremsta megni.

Varðandi þá miklu fækkun sem hefur orðið á fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd þá er það rétt að hún hefur verið veruleg á undanförnum árum. Við vorum auðvitað með tvö ár hér, sérstaklega tvö ár þar sem fjöldinn var mjög mikill. Það var að langmestu leyti fólk frá Úkraínu og það er stærsti hlutinn sem sækir um enn þann dag í dag, langstærsti hlutinn, og við erum sammála um að veita því fólki aðgang að okkar samfélagi í gegnum þetta kerfi. En það var auðvitað hópur fólks frá Venesúela sem fékk sjálfkrafa vernd á þeim tíma en síðan breytti kærunefndin, eins og við vitum, afstöðu sinni til þess og fólk fékk ekki lengur þessa sjálfkrafa vernd. Það var hygg ég stærsti parturinn í því að það fækkaði svona mjög umsóknum, enda við sjáum það bara á tölfræðinni í þeim gagnagrunni sem haldið er úti af stjórnvöldum að það er auðvitað stærsta ástæðan fyrir því.

Varðandi það að hér sé verið að byggja á norskum reglum, eins og bæði kom fram hjá hæstv. dómsmálaráðherra og líka hjá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, þá tek ég undir með þeim báðum að það er fagnaðarefni að það sé horft sérstaklega til Noregs í þessu samhengi. Það var líka vísað í ferð allsherjar- og menntamálanefndar til Noregs og Danmerkur á síðasta kjörtímabili sem ég fór í. Þá fórum við og skoðuðum og heyrðum í fólki í báðum löndunum um þessi mál. Við vorum held ég öll sammála um það þá að bæði aðferðafræðin sem notuð er í Noregi og ekki síst tónninn í norskum aðilum sem við ræddum við var annar heldur en í Danmörku og hugnaðist okkur betur. Ég held að það megi reyndar líka líta til þess sem Kanada hefur verið að gera í sínum málum þegar kemur að útlendingamálum almennt. Þar er auðvitað mikil fyrirmynd sem við Íslendingar getum líka litið til.

En eitt af því sem t.d. kom í ljós þegar við vorum að skoða móttökubúðirnar, af því að talið færðist aðeins að þeim hérna áðan, var t.d. sá veruleiki í Danmörku að það voru einstaklingar í þessum móttökubúðum sem voru búnir að vera í þeim árum saman. Þá er komið eitthvert víti fyrir okkur, held ég, til að varast því að við viljum ekki að í svona búðum sé fólk of lengi, hvort sem það eru móttökubúðir eða brottfararbúðir, og það er auðvitað tryggt í þessu frumvarpi hér. Ég hygg nú reyndar og vona að allsherjar- og menntamálanefnd og þingið rýni þetta allt saman til gagns og sníði af einhverja vankanta ef þeir eru. En ég hygg að það ætti að vera ágætissamstaða um breiðu línurnar í þessu tiltekna frumvarpi.

Af því að ég var að tala almennt um umræðuna um þessi mál, að þegar við tölum um hælisleitendur og verndarkerfið þá tölum við náttúrlega mikið um kostnað, sem við þurfum að gera, en mér finnst að við megum líka temja okkur að tala svolítið mikið um þann ávinning sem felst í því fyrir íslenskt samfélag þegar fólk sem kemur hingað í gegnum verndarkerfið, sest hér að og tekur fullan þátt í samfélaginu, borgar sína skatta og skyldur og verður með tímanum fullgildir Íslendingar. Það eru gríðarleg verðmæti fyrir okkar samfélag í því en við erum einhvern veginn alltaf bara að tala um kostnaðinn en tölum aldrei um ágóðann fyrir íslenskt samfélag sem verður þegar vel tekst til í því að koma fólki fyrir, hjálpa því að setjast að.

Ég ætla samt að leyfa mér hér, af því að ég held að það sé ágætissátt um þetta tiltekna mál, að kasta því fram til þingheims að við erum oft að takast mikið á — og það á sér nú mest stað úti í samfélaginu, það er ekkert endilega bara hér í þessum sal — um þessi hælisleitendamál og umræðan er oft hörð og mér fyndist ekki galið ef þingflokkarnir settust niður og skoðuðu flöt á því að reyna að ná meiri samhljómi almennt í þessum málum. Það myndi auðvitað þýða að allir flokkar þyrftu eitthvað að slípa til af sínum ýtrustu kröfum, stefnumálum og sjónarmiðum í þessum efnum. En ég held að meiri sátt um þennan málaflokk myndi gera samfélaginu alveg óskaplega gott. Það er ekki gott að við séum að nota hælisleitendur eða verndarkerfið sem einhvern stökkpall inn í eitthvað sem má vel kalla útlendingaandúð. Það hefur mér stundum fundist gerast, það gerist ekki í þessum sal nákvæmlega en afleiðingin af þeirri umræðu sem stundum á sér stað getur orðið sú. Ég ætla að leyfa mér sérstaklega í því samhengi að vitna til þess þegar fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, talaði hér um tjaldbúðir á Austurvelli og í sama samhengi ræddi hann um skipulagða glæpahópa og annað. Umræðan sem spratt upp úr því var ekki góð. Ég held að það hafi ekki endilega verið ætlun formannsins en þetta er bara lítið dæmi um það hvað við höfum mikið um það að segja hvernig umræðan fer síðan fram úti í samfélaginu.

Ég vona að okkur auðnist þegar við erum að ræða um þessa brottfararstöð að hafa það í huga og reyna að sammælast um að við erum sammála um nauðsynina á því að koma því þannig fyrir að þeir útlendingar sem vilja ekki fara að fyrirmælum en eiga ekki rétt á að vera hérna og þurfa að fara út, að það sé gert með mannúðlegum hætti og að umræðan um þetta sem fari síðan fram úti í samfélaginu, að sá tónn sem stjórnmálin gefi verði til þess að við sýnum því fólki öllu virðingu í okkar tali og okkar framgöngu.