157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[19:20]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur kærlega fyrir þetta andsvar þótt mér hafi reyndar fundist það svolítið sérkennilegt. Ég var að segja í minni ræðu að ég væri efnislega sammála því frumvarpi sem hér lægi fyrir. Ég var líka að fara aðeins yfir sjónarmið út frá mínum flokki gagnvart þeirri ræðu sem var flutt á undan minni og ég tók það skýrt fram að hv. þingmaður, sem þá var dómsmálaráðherra, hafi setið í þessum hóp sem fundaði nokkrum sinnum ásamt þáverandi félagsmálaráðherra og fulltrúum allra flokka, en mig minnir reyndar að Miðflokkurinn hafi ekki verið duglegur að mæta á þessa fundi. Þeir voru ekki margir og mér fannst vinnan verða svolítið endasleppt. Ég man að ég og hv. þingmaður áttum samtöl um að við þyrftum að gera meira úr þessum hóp og hún vildi endilega dýpka þá vinnu. Svo fannst mér bara svolítið fjara undan því en ég held að það hafi ekki verið einhver illur ásetningur á bak við það.

Það liggur alveg fyrir að þegar þessi ríkisstjórn er að taka við, bæði í þessum málaflokki og mörgum öðrum, tökum við við ákveðinni vinnu. Í pólitík er það ekki þannig að allt sem var gert áður sé alvont og allt sem við erum að gera sé algott og svo öfugt. Þetta er auðvitað ekki þannig. Ég ætla rétt að vona að allir í pólitík ástundi þau vinnubrögð við ríkisstjórnarskipti að halda áfram með góð mál fyrri ríkisstjórnar. Við erum meira sammála en ósammála í þessum sal alla jafna. Ég skil ekki alveg hvert hv. þingmaður er að fara með þessari athugasemd sinni. Ég var að segja það í minni ræðu að mér finnst mikið á okkur leggjandi til þess að reyna að ná meiri sátt um málaflokkinn. Ég held að við séum flest sammála um að það gæti verið gæfuspor fyrir samfélagið. Ég held að við hljótum flest að vera þeirrar skoðunar að hörð umræða um viðkvæma hópa og deilur um viðkvæma hópa séu ekki endilega gott súrefni inn í samfélagsumræðuna. Það var bara það sem ég var að segja. Ég held hins vegar að það sé ákveðinn áherslumunur (Forseti hringir.) á milli Viðreisnar og Sjálfstæðisflokksins þegar kemur að mörgu í þessu. Þess vegna er ég einmitt að tala um að við tökum samtalið (Forseti hringir.) en ekki að núverandi ríkisstjórn verði endilega að fara eftir ýtrustu kröfum þeirrar ríkisstjórnar sem áður sat.