brottfararstöð.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað sérstakt, frú forseti, að tala um að vinna hafi orðið endasleppt. Hún var kannski endaslepp af því að hún var kláruð. Starfshópur þessi, sem hv. þingmaður sat í, tók þátt í þeirri vinnu og það var vel, skilaði 22 aðgerðum í heildstæðri heildarsýn í þessum málaflokki sem var samþykkt í fyrri ríkisstjórn. Þegar er kallað hér eftir, eins og hv. þingmaður gerði í ræðu sinni, þverpólitísku samtali til að við náum utan um þennan málaflokk er ekki óeðlilegt við það að ég bendi hv. þingmanni á að þessi vinna er búin að eiga sér stað og hv. þingmaður tók þátt í henni. Hún varð ekki endasleppt. Hún endaði með fullgerðu plaggi sem er hægt að taka í dag og byggja ofan á og halda áfram að vinna eftir. Það var lagður grunnur að þverpólitísku samtali sem birtist í þessu heildarkerfi. Vinstri grænir samþykktu þessa heildarsýn. Það var oft erfitt í tíð fyrri ríkisstjórnar að ná í gegn breytingum í þessum málaflokki vegna andstöðu félaga okkar í Vinstri grænum. Það náðist í þessari heildarsýn. Ef það hefur náðst þá hljótum við sem hér erum inni að geta sammælst um það en það hefur verið talað um það í tíð núverandi ríkisstjórnar eins og þetta sé ekki til.
Ég fagna því að ein af þessum 22 aðgerðum var að koma upp lokuðu búsetuúrræði fyrir þá sem neita samvinnu við stjórnvöld, eru hér í ólögmætri dvöl og ber að yfirgefa landið. Það er gríðarlega mikilvægt að þeir einstaklingar séu ekki hér berskjaldaðir úti í samfélaginu því það er bæði hættulegt fyrir einstaklingana og það getur líka verið hættulegt fyrir borgara þessa lands.