157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[19:25]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við erum auðvitað sammála um þetta mál en mig langar samt að nefna í samhengi við þessa tilvísun í fyrri ríkisstjórn að þessi hugmynd um brottfararúrræði er ekki íslensk uppfinning. Við erum einfaldlega síðasta Schengen-ríkið til að taka þetta upp. Þetta er ekki eins og þetta hafi verið fundið upp af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG.

Varðandi þennan hóp, ég man ekki hvað þetta voru margir fundir, kannski fimm eða sex, sem ég sat. Var eitthvert heildarskjal sem við undirrituðum öll eða vorum öll algjörlega sammála um? Nei, það var ekki þannig. Það getur vel verið að það sé upplifun þessara þriggja flokka að þau hafi kallað stjórnarandstöðuna á einhverja fundi, án þess að það komi eitthvað formlegt út úr þeim, og segja síðan í einhverju þriggja flokka tali að það sé verið að byggja á þeim fundum. Það er ekki það sem ég er að tala um. Við getum t.d. vísað til þess þegar útlendingalögin voru samþykkt í þverpólitískri sátt, svona að mestu leyti, fyrir allmörgum árum síðan. Það voru vinnubrögð sem voru til fyrirmyndar. Þá voru hins vegar, og fram hjá því er ekki hægt að líta, lögin og það samráð eða sú samvinna sem átti sér stað í allt öðru umhverfi, eins og ég hygg reyndar að hv. þingmaður hafi komið inn á í sinni ræðu áðan. Við skulum ekkert láta eins og það sé eitthvað rosalega langt á milli okkar í þessu. Við erum greinilega bæði að kalla eftir því, ég og hv. þingmaður, að það eigi sér stað meira samtal um þetta. Er einhver hér í þessum sal á móti því að það náist meiri sátt um útlendingamál? Erum við almennt sérstaklega á móti því að ná meiri sátt um mál, sérstaklega þar sem viðkvæmir hópar eru undir? Ég held ekki. (GHaf: Þetta er nú viðsnúningur. ) Nei, þetta er ekki neinn viðsnúningur. Ég rakti áðan stefnu Viðreisnar og nákvæmlega það að við gagnrýndum harkalega hvernig staðið var að þjónustusviptingunni á sínum tíma og við vorum sammála sumu af því sem kom fram í frumvarpi hv. þingmanns þegar hv. þingmaður var dómsmálaráðherra. Við vorum mjög andsnúin öðru, sérstaklega því sem sneri að fjölskyldusameiningunum. Þess vegna gátum við ekki stutt frumvarpið. Við studdum hins vegar það sem sneri að kærunefndinni vegna þess að það þótti okkur styrkja það markmið að flýta fyrir afgreiðslu mála því það er mannréttindamál, bæði fyrir þá sem fá að vera og þá sem fá ekki að vera, að niðurstaða komi sem fyrst.