brottfararstöð.
Frú forseti. Ég ætlaði að þakka fyrir ágæta ræðu þingmannsins og hafði áhyggjur af því að hann væri hlaupinn á brott en ég sé að hann er kominn hér aftur í þingsalinn. Ég vil byrja á því að þakka fyrir hans orð. Jú, það er rétt hjá honum, við áttum ansi mikið samráð á síðasta kjörtímabili um þennan málaflokk. Sitt sýnist hverjum um árangurinn af því.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður nefndi heimsókn okkar til Sandholm í Danmörku, sem eru móttökubúðir þeirra Dana sem eru staðsettar í 42 km fjarlægð frá Kastrup-flugvelli. Þar fengum við ansi góða yfirsýn yfir starfsemina og hún er m.a. rekin af Rauða krossinum í Danmörku. Mér fannst sérstakt þegar við síðan fórum að ræða málið inni í þingnefnd að það virtist vera mjög mismunandi skilningur varðandi ýmsa þætti þessa málaflokks á milli Rauða krossins í Danmörku og Rauða krossins á Íslandi. Ég held að báðir aðilar og flestir séu sammála um að það skipti máli að hafa mannúð að leiðarljósi.
Ég vil spyrja hv. þingmann aðeins út í þessa hluti sem snúa að innviðum og mikilvægi þess að standa vel að þessum málaflokki. Hér í andsvari mínu við hæstv. ráðherra nefndi ég að ég hefði áhyggjur af því að þarna væri verið að setja saman aðila sem væru í ólíkri stöðu. Ólík staða getur gert það að verkum að komið geta upp alls kyns vandamál sem þarf að taka á. Sérfræðingar í málaflokknum hafa m.a. varað við því að fólk sem er í mjög ólíkri stöðu, en fellur samt undir hóp umsækjenda um alþjóðlega vernd, þurfi að sinna sérstaklega. Ég velti fyrir mér t.d. börnum, eins og hv. þingmaður nefndi, sem kunna að þurfa að dvelja í móttökustöð lengi, hver muni þá sinna til að mynda úrræðum sem snúa að fræðslu þessara barna o.s.frv. (Forseti hringir.) Það er mikilvægt að við vöndum til verka. Er ekki þingmaðurinn sammála mér í því?