157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[19:32]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég styð brottfararúrræðið og ég held að það skipti mjög miklu máli að það sé vandað til verka. Aftur á móti er staðreynd, og kemur fram í frumvarpinu, að það á að færa starfsemi móttökustöðvar á Suðurnesin einnig. Þá erum við komin með brottfararstöð og móttökustöð. Það er vissulega skimun sem þar fer fram. En það sem ég er að nefna eru þessir ólíku hópar; annars vegar hópar sem eru að koma inn í skimun í móttökustöð og geta haft alls kyns mismunandi stöðu og hins vegar eru það aðilar sem á að vísa úr landi. Það kemur fram í frumvarpinu að gert sé ráð fyrir því að sérstaklega þeir hópar sem eiga að fara úr landi geti verið mislengi og það þurfi auðvitað að sækja leyfi fyrir því. Ég held að það sé nokkuð skýrt. Það sem er ekki skýrt í mínum huga eru þeir hópar sem lenda þarna einhvers staðar á milli.

Við höfum haft þá bæði á Íslandi og við höfum líka heyrt af þeim erlendis. Þetta er landamæralaust fólk sem kannski fellur ekki nákvæmlega undir einhverja ákveðna skilgreiningu og dagar mögulega uppi í svona úrræðum. Það verður að vera algjörlega skýrt hvað það þýðir; er það fólk t.d. frjálst ferða sinna? Ég myndi halda að það væri það. Hvaða þjónustu þarf það fólk og hvaða áhrif hefur það til að mynda á innviði á þessu svæði? Þurfum við ekki að tryggja að þau úrræði séu til staðar til að mæta þeim þörfum? Álagið hefur verið mikið þarna, þó að ég dragi ekkert úr fagmennsku fólks á Suðurnesjum til að huga að málaflokknum þá hef ég áhyggjur af því að það eigi eftir að gera ansi mikið til þess að tryggja að þessi starfsemi geti verið öflug eins og menn eru að vonast til.