157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[19:34]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég var einmitt að nefna það í minni ræðu að í móttökubúðunum sem við heimsóttum í Danmörku kom það fyrir að fólk dagaði þar uppi ansi lengi, miklu lengur heldur en það átti að vera, og ég man að okkur fannst það gagnrýnisvert. Ég skil það þannig að þegar kemur annars vegar að þessu brottfararúrræði og svo hins vegar móttöku sé þarna verið að nýta miðlægt ákveðna sérþekkingu sem getur nýst á báðum sviðunum, fagfólki, samnýtingu á aðstöðu og eitthvað í þeim dúr, en ekki þannig að fólk verði þarna lengi við komuna til landsins. Ég skil það ekki sem svo og ég skildi heldur ekki svar hæstv. dómsmálaráðherra um það hér áðan sem svo. Þetta er eitthvað sem nefndin hlýtur þá að taka til skoðunar. Ef það eru einhver álitaefni þarna uppi þá er það hin þinglega meðferð sem á að grípa það. Ég vona a.m.k. og heyri það á þeim ræðum sem hér hafa þegar verið fluttar að það ætti ekki að vera mikill ágreiningur um það að koma þessu máli í höfn og bæta það í hinni þinglegu meðferð.