brottfararstöð.
Virðulegur forseti. Ég nefndi það í andsvörum við hæstv. dómsmálaráðherra eftir framsögu hennar um þetta mál að miklar líkur væru á að hægt væri að ná nokkurri samstöðu um framgang þessa máls. Ég ætla ekkert að draga svo sem úr þessum ummælum mínum en ég vil þó nota tækifærið og segja að auðvitað er þetta frumvarp ekki hafið yfir gagnrýni. Gagnrýni er kannski ekki rétta orðið heldur miklu frekar er það ekki hafið yfir þörf fyrir yfirlegu og vandaða þinglega meðferð og kallar á að þingmenn setji sig svolítið inn í þessi mál, ekki bara með tilliti til þessa frumvarps og þessa afmarkaða máls sem þetta frumvarp nær til heldur reyni að setja það í samhengi við framtíðarþróun í þessum málaflokki, t.d. í samhengi við annað mál er liggur fyrir þinginu núna í þinglegri meðferð um breytingu á lögum um útlendinga er lýtur að afturköllun verndar. Það er að einhverju leyti vísað í það frumvarp sérstaklega í þessu frumvarpi.
Ég held að það væri til velfarnaðar fallið að hv. þingmenn reyndu aðeins að fá einhverja mynd á það hvert þetta frumvarp á að leiða okkur, nái þessi breyting á lögunum fram að ganga. Hvert mun það leiða okkur til framtíðar? Eru nægilega stór skref stigin með þessu máli eða má jafnvel eitthvað betur fara? Svona fyrir fram get ég alveg lýst því yfir að hugmyndin með frumvarpinu og, hvað á maður að segja, andi frumvarpsins hugnast mér að því leyti að ég tel mega greina að menn séu að reyna að grípa til einhverra aðgerða til að mæta þeim vanda sem menn eru í dag orðnir sammála um að sé til staðar.
Menn hafa ekki alltaf verið sammála því að það sé vandi hér, vandi sem stafi af útlendingum eða ólöglegri dvöl útlendinga hér á landi, bæði ólöglegri dvöl eða mikilli ásókn manna sem koma hingað til að sækja um alþjóðlega vernd. Ég man þá tíð þegar ég gegndi embætti dómsmálaráðherra frá árinu 2017 að hér fór allt á hliðina, bæði hér í þingsal og jafnvel í ríkisstjórninni sem ég sat í og í fjölmiðlum þegar átti að brottvísa einum einstaka manni hér á landi. Ég man meira að segja þá tíð að þingmenn Viðreisnar, sem nú sitja í ríkisstjórn og hæstv. dómsmálaráðherra tilheyrir, lögðust gegn — þá meira að segja sjálfir í ríkisstjórn með þeirri sem hér stendur — lögðust gegn brottvísun tiltekinna einstaklinga sem fjölmiðlar höfðu náð að tromma upp með, lögðust gegn því að framfylgt yrði lögbundnum ákvörðunum í stjórnsýslunni að vandlega yfirlögðu ráði og eftir vandlegt mat á aðstæðum, hvers niðurstaða var að það þyrfti að brottvísa tilteknum einstaklingum ásamt fjöldamörgum öðrum, en þessir einstaklingar náðu í fjölmiðla. Þingmenn Viðreisnar lögðust gegn því og drógu ekkert af sér í hagsmunagæslu fyrir þessa einstaklinga sem voru hér í ólögmætri dvöl.
Ég fagna því í sjálfu sér að Viðreisn hafi núna horfst í augu við að þetta er málaflokkur þar sem ekki er hægt að sitja og láta bara hjá líða að grípa til aðgerða þegar menn sjá brotalöm í þessu kerfi. Þetta er viðleitni, heiðarleg viðleitni verð ég að segja, til þess að mæta þessum vanda.
Eins og fram kom í máli ráðherra og kemur fram í greinargerð þá hefur verið bent á það lengi að hér hafi ekki verið brottfararstöð til staðar. Það er rétt. Það er rétt að geta þess líka að í þessum svokölluðu Schengen-úttektum sem Ísland og öll aðildarríki Schengen heyra undir þá hafa komið fram ábendingar um svo mikla misbresti hér á Íslandi í þessu kerfi að það hefur auðvitað ekki verið hægt að mæta öllum þeim ábendingum í einu. Nú er sem sagt komið að þessu en það hefur tekist að auka öryggi verulega á landamærum Íslands á undanförnum árum þótt vissulega sé bara málaflokkurinn og tækni og þróun í för fólks á milli landa þannig að það þarf alltaf að betrumbæta og leita leiða til að tryggja öryggi landamæra. En gott og vel.
Þetta frumvarp varðar þessa brottfararstöð svokölluðu. Núverandi staða er sú að þeir sem eru í ólögmætri dvöl og neita að yfirgefa landið eru bara settir í fangelsi. Mér hefur í sjálfu sér ekki fundist það neitt galin lausn eða galnar aðstæður, enda er auðvitað heimild fyrir því í útlendingalögum að færa þá bara í fangelsi undir þeim formerkjum að þeir séu ekki dæmdir fyrir brot. En það kemur þó úrskurður um slíkt og lögreglunni er heimilt að færa slíka menn í varðhald. Svo sannarlega hefur það verið kannski eðlileg lausn þegar um fáa einstaklinga var að ræða. Þannig var það fyrir nokkrum árum að það voru kannski örfáir sem þannig háttaði um að þeir voru erfiðir og erfitt að vísa þeim úr landi, voru búnir að brenna allar brýr að baki, voru búnir að fá alla meðferð sem þeir áttu rétt á en allt að einu neituðu þeir að fara úr landi og torvelduðu yfirvöldum, lögreglunni, að fara með þá úr landi vegna þess að þeir t.d. framvísuðu ekki skilríkjum eða viðtökuríkið, þeirra heimaland sem menn voru búnir að komast að eftir miklum krókaleiðum hvert væri, neitaði að taka við þeim. Það segir sig sjálft að menn geta ekki flogið með slíka einstaklinga og hent þeim niður hvar sem er. En gott og vel.
Svo bara hefur það gerst, því miður, að það hefur fjölgað í þessum hópi og það er greint frá því í þessu frumvarpi að yfir 50 manns hafi nýtt þetta fangelsisúrræði í fyrra eða hittiðfyrra og þeir séu orðnir um 29 það sem af er þessu ári. Það má gera ráð fyrir að þetta úrræði geti varðað um 50 manns á hverju einasta ári. Það er auðvitað allt of mikið. Það þarf að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að menn lendi í þessu úrræði. Til þess er nú þetta frumvarp, að grípa þetta þannig að við erum að færa þessa fangelsismenn yfir í brottfararstöð. En frumvarpið gerir ráð fyrir hins vegar meiru. Það gerir ráð fyrir að fleiri en þeir sem hafa verið að dvelja í fangelsi muni dvelja í þessu úrræði. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að þeir sem dvalið hafa í neyðarskýlum geri það líka, eins og nefnt er hér. Mér fannst ekki koma nægilega skýrt fram í máli hæstv. dómsmálaráðherra í svari hennar við andsvari hv. þm. Jóhanns Friðriks Friðrikssonar sem sérstaklega spurði um þetta, hverjir það raunverulega væru. En það stendur í frumvarpinu að það standi til að starfsemi neyðarskýlis — sem er greinilega verið að starfrækja núna og ég játa að ég þekki ekki nákvæmlega hver starfsemin er, en það er greinilega verið að starfrækja neyðarskýli fyrir þá útlendinga sem hafnað hafa samvinnu við yfirvöld og misst þjónustu í kjölfarið. Frumvarpið gerir ráð fyrir að þeir verði í brottfararstöð þegar starfsemi hennar hefst. Ég get ekki skilið þetta öðruvísi en að hérna sé um að ræða einhverja aðra einstaklinga en þá sem dvelja í fangelsum. Þannig að auk þessara 50 í fangelsum erum við að horfa á einhverja sem mögulega eru í neyðarskýli.
Það er líka gert ráð fyrir því að í brottfararstöð muni dveljast einhverjir einstaklingar sem falla undir nýjan dvalarflokk sem við höfum ekki enn þá samþykkt en kveðið er á um í lagafrumvarpi sem liggur fyrir þinginu þessa dagana og ég vitnaði til áðan, frumvarpi til laga um breytingu á útlendingalögum. Þar er gert ráð fyrir nýjum dvalarleyfisflokki vegna umborinnar dvalar. Þetta er hugtak eða flokkur sem við höfum ekki notað á Íslandi en er vel þekktur á meginlandi Evrópu, einkum kannski í Þýskalandi þar sem stórum hluta Tyrkja var veittur með löggjöf réttur til þess sem þeir kölluðu umborinnar dvalar. Gott og vel. Nú erum við ekki að fjalla um þetta frumvarp um umborna dvöl en það er full ástæða til að skoða þetta mál í samhengi við það líka.
Ég hjó einmitt eftir ágætri ábendingu frá hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni í andsvari hans við hv. þm. Sigmar Guðmundsson sem hélt hér ræðu á undan mér. Hann benti á það, sem er rétt, að það er hætta á því að menn dagi uppi í svona úrræði. Sjálf hef ég í minni tíð sem dómsmálaráðherra heimsótt svona brottfararstöð í Danmörku, ég veit ekki hvort það var sama brottfararstöðin og hv. þm. Sigmar Guðmundsson sagðist hafa heimsótt, ef ég skildi rétt, en ég heimsótti mikla og stóra brottfararstöð á Jótlandi þar sem dæmi voru um að karlmenn hefðu dvalið í yfir áratug í einhverju úrræði uppi á jósku heiðunum. Þeir fengu reiðhjól til afnota og hjóluðu í bæinn á daginn og skiluðu sér heim á kvöldin. Allt mjög furðulegt fyrirkomulag. Ég geld varhuga við því að við stefnum í þessa átt. Þótt menn nefni oft að taka upp reglur eins og á Norðurlöndunum þá þreytist ég ekki á því að nefna það að ekkert Norðurlandanna hefur alveg eins reglur, sambærilegar reglur sín á milli. Ísland þarf fyrst og fremst að huga að því að taka upp reglur sem henta Íslandi þótt þær muni kallast séríslenskar reglur, en ekki taka upp reglur frá Norðurlöndunum og sérstaklega ekki þær reglur sem ekki hafa gagnast þeim nægilega. Ég er ekki að fullyrða að þetta frumvarp sé að gera það en þetta þarf að skoða mjög vandlega því í upphafi skyldi endinn skoða að þessu leyti. Menn gera ráð fyrir að í þessu úrræði verði um 50 manns og ef gert er ráð fyrir að alls konar fólk og einhver safnflokkur manna í umborinni dvöl fari líka að dvelja í brottfararstöð, þá er þetta fljótt að tikka upp í jafnvel nokkur hundruð manns mögulega, þótt ég vissulega voni að það verði ekki. Þetta vildi ég nefna.
Annað varðandi brottfararstöðina, þá vildi ég nefna kostnaðinn. Það liggur fyrir í greinargerð að það er enn þá verið að meta hvernig menn ætla að haga þessum málum, hvað það kostar að koma upp húsnæði fyrir brottfararstöð. Hvað þurfa margir að vinna þar? Hvað ætla menn að gera þarna? Það er algerlega óskýrt hver kostnaðurinn af fyrirbærinu sem slíku á að vera. Ég geri athugasemdir við að frumvarpshöfundar hafi ekki gert betri grein fyrir því í frumvarpinu, í áhrifamatskaflanum, en leyfi sér bara að vísa í gildandi fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir að starfsemin sé fjármögnuð varanlega og svo er vísað til fjárlaga fyrir næsta ár þar sem er gert ráð fyrir árlegu rekstrarframlagi að fjárhæð 500 millj. kr. Fjárlög gera náttúrlega ekki ráð fyrir nema fjárheimildum næsta árs, ekki fram í tímann, þannig að þetta er allt óskýrt. Ég hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að fá sundurliðað mjög vel hvernig menn sjá fyrir sér þennan kostnað og einnig líka þann kostnað sem stjórnvöld hafa af þessum einstaklingum í dag, þeim einstaklingum sem ætlað er að fara í þetta úrræði. Það skiptir máli að þetta liggi fyrir þinginu og þingið fái greinargóðar upplýsingar um þetta.
Ég vil síðan nefna það líka í lokin að frumvarpið leynir á sér vegna þess að í 22. gr. þess eru nokkuð efnismiklar lagabreytingar á öðrum lögum, einkum lögum um útlendinga, reyndar bara breytingar á lögum um útlendinga, sýnist mér, kannski einhverjum fleirum. En þetta er mjög efnismikil grein sem m.a. felur í sér breytingar á starfsemi í móttökumiðstöð sem nú er starfrækt í Domus Medica en ádráttur er um í greinargerð að flytjist nær Keflavíkurflugvelli. En ég hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að átta sig á því a.m.k. að þetta varðar ekki bara brottfararstöð, þetta varðar líka starfsemi í móttökumiðstöð.