brottfararstöð.
Virðulegur forseti. Þetta er góð ábending og það er full ástæða til þess að kalla eftir þessum gögnum. Af því að hv. þingmaður nefnir Írak sem dæmi, þá væri líka mjög nauðsynlegt að hv. þingmenn og hv. allsherjar- og menntamálanefnd átti sig á því hvert umfangið er, hversu margir eru í þeirri stöðu að þurfa að brottvísa til landa utan Schengen-svæðisins vegna þess að flestir koma í gegnum eitthvert land og flestir hafa sótt um hæli í einhverju öðru Evrópulandi og þá á að vera hægt að vísa þeim þangað. Þetta er því tvímælalaust eitthvað sem þarf að liggja fyrir til að menn átti sig á umfanginu. Þetta er held ég líka fínt tækifæri fyrir þingmenn til þess að fá þessar upplýsingar sundurliðaðar, svolítið bara stöðuna eins og hún er í dag, ekki bara upp á afgreiðslu þessa frumvarps heldur líka á hinu frumvarpinu sem liggur fyrir þinginu um breytingar á útlendingalögunum.
Ég vek athygli á því að í 8. gr. þessa frumvarps er kveðið á um það varðandi þessa brottfararstöð að þjónusta á brottfararstöð skuli taka mið af þörfum og stöðu vistmanna. Þetta slær mig svolítið eins og þeir sem ætli að dvelja þarna, ólíkt því sem þeir gera núna ef þeir eru í fangelsi, geti kallað eftir einhverri ákveðinni þjónustu, bara eins og þeir meta að þeir þurfi. Ég held að þetta þyrfti að skýra miklu betur vegna þess að það liggur fyrir að þeir sem eru komnir á þessa stöð eru sviptir réttindum. Þeir missa allan rétt til þjónustu sveitarfélags og þjónustu sem almennir hælisleitendur fá þegar þeir eru að bíða eftir svari við umsóknum og svona, þannig að þeir missa öll réttindi. Þá dúkkar upp þetta ákvæði um að þjónusta á brottfararstöð skuli taka mið af þörfum þessa fólks. Þetta þarf að skoða vandlega.