157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[19:56]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni og þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt fyrir nefndina einmitt að leggjast í þá vinnu að greina hverjir þeir eru raunverulega sem koma til með að vera innan þessara veggja, vegna þess að bara ef horft er til sérfræðinga í málaflokknum þá hefur sannarlega verið lagt upp með það að reyna að mæta þörfum hvers hóps fyrir sig. Við lentum í þessu eins og margir muna þegar við fengum stóra hópa af fólki sem sótti um alþjóðlega vernd hér og við vorum ekki með nægilega góð úrræði og þar blönduðust mjög mismunandi hópar saman. Það þótti ekki æskilegt og það var reynt að vinna í burtu frá slíku fyrirkomulagi. Þess vegna tek ég undir með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að vinnan í nefndinni sé vel unnin.

Ég get ekki skilið frumvarpið betur en þannig að það sé verið að taka fram að það eigi að veita ansi yfirgripsmikla þjónustu. Ég myndi ætla að ef allir þessir hópar eru eins mismunandi og ég held að þeir séu, þá séum við til að mynda með hóp sem er búið að dæma til að vera í brottfararstöð og á að fara úr landi, það eru aðilar sem ætla að fara úr landi en hafa ekki þurft þvingun til, það eru aðilar sem eru í skimun og eru að koma til landsins og aðilar sem eru í þeirri stöðu að það er ekki hægt að brottvísa þeim. Ég myndi ætla að það þurfi að taka tillit til allra þessara hópa.