stafræn og rafræn málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga sem mér finnst dálítið svona — af því að það er aðeins liðið á kvöldið og við lifum svo spennandi lífi sem hér erum í þessum sal þá finnst mér fyndið að þetta heiti frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum. Það væri gott að stoppa hér en þetta er á ýmsum lögum vegna stafrænnar og rafrænnar málsmeðferðar hjá sýslumönnum og dómstólum. Löggjöfin sem í hlut á eru nokkur lög, það eru erfðalög, lög um aðför, lög um skipti á dánarbúum, lög um gjaldþrotaskipti og lög um nauðungarsölu.
Markmiðið með þessu frumvarpi er að einfalda og bæta þjónustu. Það er að tryggja skilvirkari afgreiðslu mála og styðja við stefnu stjórnvalda um stafræna þjónustu. Ég sé þetta sem einföldunarmál. Ég sé þetta sem mál um betri þjónustu við íbúa í landinu. Þegar við tölum um að styðja við stefnu stjórnvalda um stafræna þjónustu þá finnst mér jafnframt mega nefna að þetta er ákveðið byggðamál í því samhengi að með stafrænu þjónustunni tryggjum við að aðgengi sé eitt og hið sama óháð búsetu. Það er mikilvægt skref að tryggja jafnara aðgengi að opinberri þjónustu óháð búsetu. Ég tek fram að með breytingunum er verið að ryðja úr vegi ýmsum hindrunum í gildandi löggjöf án þess að réttaröryggi sé fyrir borð borið.
Þetta frumvarp byggist að hluta til á frumvarpi sem lagt var fram af þáverandi dómsmálaráðherra 2023–2024, og ég gef mér að sá þáverandi dómsmálaráðherra sitji hér í salnum, ekki satt, en hlaut ekki afgreiðslu úr allsherjar- og menntamálanefnd. Fyrir þá sem ekki sjá þá er dómsmálaráðherrann sem um ræðir hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir. Frumvarpið hefur síðan þá tekið nokkrum breytingum þar sem m.a. hefur verið tekið tillit til þeirra ábendinga og athugasemda sem bárust á meðan málið var til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og síðan áður umsagna sem bárust þegar málið var til meðferðar hjá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis. Þá eru núna lagðar til efnislega samhljóða breytingar um tæknilegt hlutleysi á fleiri lagabálkum en áður þar sem sömu rök þykja eiga við um þá alla þannig að það hefur verið fallið frá fyrri áformum um breytingar á lögum um aðför og lögum um nauðungarsölu sem miðuðu að því að fækka fyrirtökum aðfararbeiðna og nauðungarsölubeiðna. Í dálítinn tíma hefur verið til athugunar í dómsmálaráðuneytinu að gera breytingar á lögum um aðför og lögum um nauðungarsölu og markmiðið hefur verið að heimila notkun stafrænna og rafrænna lausna við meðferð mála hjá sýslumönnum og dómstólum án þess þó að gera stórar breytingar á hinum eiginlegu efnisreglum.
Sömu sjónarmið eiga við um erfðalög, lög um skipti á dánarbúum og lög um gjaldþrotaskipti. Því er lagt til að sömu grundvallarbreytingarnar verði gerðar á öllum þessum lagabálkum. Málsmeðferðin hefur í meginatriðum haldist óbreytt í öllum þessum lagabálkum frá gildistöku laganna en bætt tækni og lagabreytingar á öðrum sviðum réttarins skapa forsendur fyrir því að, ef við tölum íslensku, það þurfi ekki nota pappír jafn mikið og verið hefur, þannig að ferlið getur sums staðar að miklu leyti orðið rafrænt eða stafrænt og þetta er eiginlega kjarninn í því. Þegar við tölum um að einfalda og bæta þjónustu, þá er það að málsmeðferð þarna geta orðið ekki jafn háð pappír og verið hefur og í auknum mæli rafræn og stafræn.
Ég vil taka sérstaklega fram að frá árinu 2020 hafa verið í gildi bráðabirgðaheimildir sem heimila rafræna málsmeðferð vegna skipta á dánarbúum. Ég man eftir því að hafa sjálf setið í allsherjarnefnd árið 2020 þar sem við vorum einmitt að glíma við Covid og við vorum að glíma við þær aðstæður að fólk átti ekki gott með að hittast vegna þeirra takmarkana sem voru og það var dálítið skemmtilegt að sjá að sá kafli, sem ég held að við séum öll sammála um að hafi ekki verið sérlega skemmtilegur eða góður, varð þó til þess að flýta breytingum sem hefðu eflaust sumar mátt gerast fyrr.
Þessar bráðabirgðaheimildir sem voru settar í lög frá 2020 hafa reynst vel og hafa skilað bæði betri, skilvirkari og hagkvæmari afgreiðslu mála. En þessar heimildir falla sem sagt úr gildi í upphafi næsta árs og þess vegna er einmitt mjög brýnt — það er raunverulega þannig að þetta er viðkvæmt mál út frá tíma — að festa þær núna til frambúðar til að forðast afturför. Auðvitað væri hægt að fara þá leið að tala aftur um það að ætla að lengja í þessum frestum en reynslan er með okkur núna. Þetta hefur reynst gríðarlega vel þannig að það er fullkomin ástæða til þess að gera þær varanlegar en í því samhengi erum við að ræða um svokallað dagsetningarmál því að í upphafi næsta árs er þessi heimild úr gildi fallin.
Virðulegi forseti. Helstu efnisatriði frumvarpsins eru eftirfarandi: Það er lagt til að fest verði í lög ákvæði sem tekur af öll tvímæli um að stafræn og rafræn málsmeðferð sé jafngild málsmeðferð sem er á pappír. Sömuleiðis er horfið frá því að tiltaka í lögum hvað þurfi mörg eintök af málsgögnum og undirritun þeirra með eigin hendi. Í sumum tilvikum vitum við, þar sem verið er að biðja um tiltekinn fjölda málsgagna og málsgögnin eru mikil að umfangi, að þetta er rosalega mikill pappír. Þá eru lagðar til orðalagsbreytingar sem lýsa betur þessari tæknilega hlutlausu málsmeðferð.
Í frumvarpinu er líka lagt til að heimilt verði að birta gögn og birta tilkynningar frá sýslumanni og dómara í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt, sem við þekkjum öll sem island.is, og tilkynna um fyrirtöku, aðfarar- og nauðungarsölubeiðnir, boðanir á fundi og leyfisbréf. Í þessu samhengi vaknar stundum spurningin: Bíddu, hvaða áhrif hefur þetta? Þess vegna segi ég: Með frumvarpinu er ekki verið að leggja til efnislegar breytingar á framkvæmd birtingar gagna í þeim tilvikum þar sem það liggur fyrir að það er skilyrði að móttaka sé staðfest, þannig að það er öryggisventillinn í þessu. Frumvarpið býður einfaldlega upp á að það sé hægt að afla rafrænnar og stafrænnar staðfestingar á móttöku gagna sem eru birt á island.is. Meginástæður þess að í sumum tilvikum er gerður strangari áskilnaður um birtingu eru þau réttindi sem búa að baki og möguleiki þess sem telur að það hafi verið farið ranglega með hans réttindi til að rétta hlut sinn með endurupptöku máls. Frumvarpinu er ekki ætlað að breyta þessum atriðum og við höldum áfram að tryggja algjört réttaröryggi aðila að þessu leyti þannig að þar sem er gerður áskilnaður um skýra staðfestingu viðkomandi á móttöku gagna er ekki verið að tala um þetta.
Frumvarpið miðar jafnframt við að birtingarmáti einkaaðila verði óbreyttur og því muni ekki standa til boða að birta gögn sem tengjast málsmeðferð þeirra laga á island.is. Í þessu frumvarpi er jafnframt lagt til að sýslumönnum verði heimilt að leyfa málsaðilum, lögmönnum og öðrum sem hafa einhverra hagsmuna að gæta að mæta á fund á skrifstofu sinni í gegnum fjarfundarbúnað, að því gefnu að allir sem viðstaddir eru geti fylgst með því sem fram fer. Þetta er líka mikið einföldunarmál og hiklaust til aukinnar þjónustu fyrir þá sem í hlut eiga. Að þessu leyti hefur verið höfð hliðsjón af eldri bráðabirgðaheimildum sem renna úr gildi í lok árs og þeim heimildum sem hafa verið gerðar varanlegar í lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála. Þessar heimildir og þessar breytingar hafa reynst mjög vel. Þess vegna er lagt til að sýslumaður fái núna sömu heimildir og lögregla og dómstólar hafa við rannsókn og meðferð mála fyrir dómi þannig að það er í reynd verið að nýta góða reynslu sem er fyrir hendi hjá lögreglu og dómstólum hvað þetta varðar og lagt til að sýslumenn fái sömu úrræði.
Að lokum þetta, virðulegi forseti: Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra setji reglugerð sem kveður nánar á um meðferð mála hjá sýslumanni, þar á meðal um rafræna staðfestingu sem mælir fyrir um afhendingarmáta, form og frágang gagna og hins vegar heimild til að mæta hjá sýslumanni um fjarfundarbúnað.
Virðulegi forseti. Þetta eru helstu atriðin í málinu. Hér hef ég farið yfir meginmarkmiðin en ég vísa að öðru leyti til greinargerðar og skýringa þar við einstök ákvæði frumvarpsins. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til meðferðar hjá hv. allsherjar- og menntamálanefnd og 2. umræðu en ég vil kannski bara enda á því sem ég byrjaði á: Þetta er mál sem lætur lítið yfir sér en er til mikils aukins hagræðis fyrir þá sem þurfa á þjónustu að halda. Við einföldum og bætum þjónustu, tryggjum skilvirkari afgreiðslu mála og styðjum við stefnu stjórnvalda um stafræna þjónustu.