stafræn og rafræn málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar framsögu í þessu máli. Það er rétt sem ráðherrann nefnir hér að ég kannast við eitthvað af þessu, úr einhverri fortíð. Ég vil fyrst og síðast segja það að við í Sjálfstæðisflokknum styðjum stafræna stjórnsýslu og hraða og gagnsæi og hér er verið að stíga jákvæð stafræn skref. Ég ætla þó að leyfa mér að nefna við hæstv. ráðherra að mér finnst vanta aðeins að skýra lagagrundvöllinn og þessa raunhæfu innleiðingu, hvernig hún á að eiga sér stað. Þá er ég að vísa til tímasetningar, fjármögnunar, forritunar, starfsmanna hjá sýslumannsembættinu og þjálfunar þannig að fagleg gæði haldist. Á bls. tíu í frumvarpinu er nefnt að þetta sé áherslan sem er í stefnu stjórnvalda sem fylgi stafrænu Íslandi. Þar eru nefndar rafrænar undirritanir, fjarfundabúnaður og aðrar lausnir. Sú sem hér stendur getur vitnað um að mikil þróun varð á þessu á tímum heimsfaraldurs og samkomutakmarkana. Sú sem hér stendur seldi bíl í dag og kom ekki nálægt því og gat undirritað eigendaskipti héðan úr Alþingishúsinu í gegnum síma og þurfti ekki að fara úr vinnunni. Það hlýtur að vera mikill hægðarauki í slíku fyrir alla landsmenn. Ég vil hins vegar spyrja að því hvernig kostnaðarmati, fjármögnun, tímasetningum og þjálfun er fyrir komið.