stafræn og rafræn málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Eins og ég nefndi í framsöguræðu þekkir þingmaðurinn þetta frumvarp í grunninn og auðvitað býsna vel. Þetta var unnið á hennar vakt, og þetta er góð vinna og mikilvæg. Mér finnst mjög ánægjulegt að heyra að hennar flokkur ætli að styðja þetta mál. Ég skil spurninguna sem svo að það sé verið að spyrja um innleiðingu. Hún er auðvitað þegar langt komin þannig að það sé ég ekki sem vandamál. Varðandi heimildir þá er það svo að vegna stjórnsýslulaga eru þarna ákveðnir þættir sem eru undanskildir en þarna erum við náttúrlega að stórum hluta að tala um tímabundnar heimildir sem við erum nú að gera varanlegar. Innleiðinguna sé ég ekki sem vandamál því við erum nú þegar langt komin með ýmislegt af þessu og eins og ég nefndi í samhengi við sýslumenn eru þeir að byggja á góðri reynslu og góðri framkvæmd sem þegar er fyrir hendi hjá dómstólunum og lögreglunni. Ég vona að ég sé að svara spurningunni og að þetta hafi snúist um þessi tvö atriði. Annars bæti ég bara við í andsvari.