innleiðing landsbyggðarmats í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda.
Herra forseti. Ég flyt hér tillögu til þingsályktunar um innleiðingu landsbyggðarmats, eða Rural Proofing, í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda. Flutningsmenn eru þingflokkur Framsóknar í heild sinni. Ásamt þeirri sem hér stendur eru það Sigurður Ingi Jóhannsson, Stefán Vagn Stefánsson, Halla Hrund Logadóttir og Þórarinn Ingi Pétursson. Hér er um að ræða þingsályktunartillögu um tiltekið umbótatæki sem íslensk stjórnsýsla gæti tekið upp á næstu árum, svokallað landsbyggðarmat en það er kallað Rural Proofing á alþjóðavettvangi og er þekkt sem slíkt og notað víða. Markmið tillögunnar er einmitt að tryggja að ákvarðanir stjórnvalda taki mið af því að Ísland er ekki eitt einfalt samfélag heldur samspil ólíkra þátta og ólíkra svæða. Við búum við fjölbreytt landslag, ólíkar aðstæður, mismunandi þjónustu og ólíkan aðgang að grunnþörfum eins og heilbrigðisþjónustu, menntun og samgöngum. Það kemur fyrir að lög og reglur séu skrifuð út frá forsendum sem henta þéttbýliskjörnum, oft skrifuð af fólki sem býr á stórhöfuðborgarsvæðinu og hefur þá eðlilega ekki þekkingu á þörfum hinna dreifðu byggða eða sérstöðu þeirra. Þegar þær reglur eru látnar gilda fyrir allt landið geta þær haft ófyrirséð og stundum skaðleg áhrif fyrir hinar dreifðu byggðir.
Stjórnsýsluákvarðanir sem skaða landsbyggðina eru yfirleitt teknar í hugsunarleysi fremur en af skeytingarleysi eða ásetningi. Fólk sem lifir og hrærist í borgarsamfélagi áttar sig oft einfaldlega ekki á því að það sem virkar vel í Reykjavík eða Hafnarfirði getur verið afar óheppilegt í Hrísey, á Langanesi eða á Vopnafirði. Við þekkjum auðvitað dæmi um að þjónusta sé sameinuð eða flutt á einn stað til hagkvæmni, og að reglugerðir séu skrifaðar út frá forsendum stærri markaða, eða að kröfur í heilbrigðis-, mennta- eða samgöngumálum séu einfaldlega ekki framkvæmanlegar á litlum stöðum. Slíkar ákvarðanir eru því ekki teknar af ásetningi heldur bara vegna þess að áhrifin af ákvörðuninni hafa ekki verið metin. Þar kemur þetta landsbyggðarmat til sögunnar sem gerir kröfu um að meta svæðisbundin áhrif. Það tryggir auðvitað ekki sjálfkrafa einhverja sanngirni en það getur hjálpað þeim sem taka ákvarðanirnar að skilja afleiðingar þeirra og stuðlað að skynsamlegri umræðu um kosti og galla þeirra áður en ákvarðanir eru teknar.
Það sem felst í landsbyggðarmati er í rauninni ekki einhver sérstök stefna eða forgangsmeðferð fyrir dreifbýlið. Þetta er einfaldlega hugsað sem gæðatæki í stjórnsýslu, leið til að vanda til verka og tryggja að ákvarðanir séu teknar með opnum augum. Ferlið byggist á fjórum skýrum skrefum. Fyrsta skrefið er skimun þar sem spurt er strax í upphafi: Hefur málið áhrif á dreifbýlið? Númer tvö er mat þar sem áhrifin eru greind með gögnum í samráði við hagsmunaaðila. Þriðja skrefið er viss aðlögun, hvort það eigi að gera breytingar eða fara í einhverjar mótvægisaðgerðir ef áhrifin eru óæskileg. Fjórða skrefið er síðan eftirfylgni þar sem verið er að meta árangur, draga lærdóma og hugsanlega að bæta ferlið. Þetta er auðvitað bara frekar einfalt eins og ég útskýri þetta hér en þetta er líka skilvirkt og gagnsætt ferli sem getur aukið gæði allrar stefnumótunar án þess að flækja stjórnsýsluna.
Ég vísaði hér til fyrirmynda fyrr í máli mínu. Í Bretlandi hefur þetta verið notað sem hluti af stjórnkerfinu í rúm 20 ár. Umhverfis- og dreifbýlisráðuneytið þar ber ábyrgð og skilar árlegri skýrslu til þingsins. Á Norður-Írlandi er þetta lögbundin skylda. Í Finnlandi hefur landsbyggðarmat verið notað við sameiningar sveitarfélaga og ákvarðanir sem snerta jaðarsvæði. Í Kanada er þessu beitt og kallað rural lens og hefur stefnumótun sambandsstjórnar þar tekið mið af því um árabil. Alls staðar er reynslan sú sama. Fólk telur að þetta leiði til betri ákvarðanatöku, hagkvæmari nýtingar opinberra fjármuna og dragi úr hættunni á að góð áform hafi neikvæðar afleiðingar. Ef til er land þar sem slík nálgun gæti hentað vel og verið gagn að er það hér á landi því við búum í víðfeðmu landi þar sem stór hluti landsmanna býr á milli Hvítánna tveggja og þjónusta er víða í tuga kílómetra fjarlægð. Veður og vegalengdir skipta máli og stafrænt aðgengi er misjafnt. Landsbyggðarmatið getur því komið í veg fyrir að góð áform hafi óheppilegar aukaverkanir. Þetta getur aukið skilvirkni opinberra aðgerða og tryggt jafnræði í þjónustu og tækifærum óháð búsetu. Við vitum það öll að það er oft dýrara að bæta fyrir mistök eftir á en að hugsa hlutina til enda í upphafi.
Tillagan sem hér liggur fyrir felur í sér að forsætisráðherra, í samstarfi við viðkomandi ráðuneyti, Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og Hagstofu Íslands, innleiði landsbyggðarmat með eftirfarandi hætti: Leiðbeiningar og aðferðafræði verði útbúnar fyrir allt Stjórnarráðið þar sem kveðið er á um skimun, ítarlegt mat og skráningu niðurstaðna. Sama stjórnsýsla verði tryggð með miðlægri stoð í forsætisráðuneytinu, mælikvarðar og gögn verði þróuð í samstarfi við Hagstofu og Byggðastofnun og gerð aðgengileg á opnu mælaborði. Þjálfun og fræðsla verði veitt stefnumótendum og greiningaraðilum og samráð verði styrkt með nýtingu stafrænnar samráðsgáttar og vinnustofu á landsbyggðinni. Síðan verði árleg skýrsla gefin til Alþingis sem tryggi gagnsæi og þessa eftirfylgni. Hér er verið að leggja til að leiðbeiningum og stjórnsýsluuppsetningu skuli ljúka innan sex mánaða frá samþykkt ályktunarinnar og að tilraunaverkefnið hefjist í fjórum ráðuneytum á næsta ári, þá á sviði innviða, samgangna, velferðar og menntunar; mat á tilraununum fari fram árið 2027 og að því loknu verði kerfið tekið upp í öllum ráðuneytum, svo framarlega sem þessi þingsályktun nái fram að ganga. Við viljum alltaf horfa á einhvern ávinning þegar við erum að taka ákvarðanir hér í þinginu og ávinningurinn er fjölþættur, þ.e. betri hönnun stefnu og reglna, skilvirkari nýting fjármuna, aukið traust, gagnsæi og jafnari tækifæri milli svæða. Kostnaðurinn er fyrst og fremst vegna mannauðs, gagna og þjálfunar og má eflaust segja að hann sé hóflegur miðað við ávinning, sé miðað við reynslu annarra þjóða.
Herra forseti. Það er mikilvægt að leggja áherslu á að þessi tillaga snýst ekki um forréttindi fyrir landsbyggðina. Hún snýst einfaldlega um jafnræði og að tryggja það að við tökum ákvarðanir á upplýstum grunni, á gögnum, og að við sjáum landið í heild en ekki bara í gegnum glugga höfuðborgarinnar. Þetta er gæðastjórnun í stefnumótun og ábyrg meðferð opinberra fjármuna. Landsbyggðarmatið er hvorki flókið né dýrt en hefur sýnt, þar sem það er notað, að það er mikilvægt verkfæri fyrir stjórnvöld til að koma í veg fyrir þjónustuskerðingu eða aukinn kostnað síðar meir. Það veitir tækifæri til að bæta vinnubrögð stjórnvalda, efla byggðajafnrétti og tryggja að lagasetning og stefnumótun endurspegli raunverulegar aðstæður fólks alls staðar á landinu.
Herra forseti. Með þessu verkfæri hér getum við í rauninni lagað alla stjórnsýslu að íslenskum aðstæðum með íslenskum mælikvörðum og í samvinnu við íslensk sveitarfélög. Þetta verkfæri hefur sannað gildi sitt víða um heim og ég bind vonir við að nefndin sem tekur málið til umfjöllunar vinni það vel og fái umsagnir í kringum það og jafnvel bæti það að teknu tilliti til þeirra umsagna sem munu berast í málinu. Ég hef trú á því að þetta gæti eflt okkur enn betur hér á Alþingi, aukið upplýsingagjöf og þar af leiðandi líka bætt ákvarðanir sem teknar eru hér í þessum sal. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili en sjáum hvað setur. Ég vona að það komi einhverjir og taki umræðuna í þessu máli.