157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

innleiðing landsbyggðarmats í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda.

175. mál
[21:08]
Horfa

Gylfi Ólafsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka framsögumanni fyrir ræðuna. Ég er mikill landsbyggðarmaður sjálfur og áhugasamur um margt sem kemur þarna fram. Margt hefur svo sem verið innleitt í íslenska stjórnsýslu, t.d. þegar lagafrumvörp fara inn í samráðsgátt og síðar inn í umsagnarferli Alþingis. Þar geta sveitarfélög, Byggðastofnun og ýmsir aðrir tekið til máls og sagt sína skoðun. Nú hafa flestir flutningsmenn verið á þingi lengur en þetta þing hér og það má ekki hljóma eins og ég sé að reyna að búa til einhverja pólitíska gildru úr því, en spurning mín er: Af hverju hefur þetta ekki komið fram áður í þeim skilningi að þetta getur ekki verið ný hugmynd? Hvað hefur hingað til stoppað að þessi sjónarmið hafi náð fram að ganga? Ef þetta er ný hugmynd, hvað væri þá mikilvægast til að andi þessarar þingsályktunartillögu nái fram að ganga og þetta deyi ekki drottni sínum í meðförum þingsins?