157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

innleiðing landsbyggðarmats í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda.

175. mál
[21:09]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Isaksen) (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Gylfa Ólafssyni fyrir andsvarið. Ég deili með honum áhuga á landsbyggðinni. Varðandi það af hverju þetta hefur ekki komið fram fyrr, þá er þetta í rauninni nýtt af nálinni hér á landi. Þetta hefur ekki verið lagt fram áður hér á landi en eins og ég fór yfir í framsögu minni áðan, þá hafa aðrar þjóðir tekið þetta upp og þetta hefur virkað vel. Ég rakst á þetta í góðu samtali við mann sem þekkir vel til bæði hérlendis og erlendis og við ræddum þetta og í kjölfarið fór ég að skoða þetta betur því það er rétt sem hv. þingmaður segir að það eru vissar vörður sem við erum að haka í þegar verið er að setja lög hér á landi. Stundum virðum við það, stundum ekki, því miður. Það er þannig. Hér er hins vegar bara verkfæri sem nýtist til að lögbinda visst verklag. Það er ekki bara hakað í box að þetta hafi farið í samráðsgátt, þó svo að það sé ekki tekið tillit til umsagnar. Það er ekki bara hakað í box við birtingu slíkrar umsagnar í vinnslu nefndar heldur er verið að spyrja strax í upphafi, í raun við ritun laganna og reglugerðanna. Þá er skimað fyrir því hvort áhrifa gæti á dreifbýli verði tiltekin tillaga lögð fram. Það er ekki alltaf gert í dag. Síðan er gert mat þar sem áhrifin eru greind og ef einhver áhrif verða er lögð til aðlögun: Hvernig getum við þá takmarkað þessi áhrif eða hvernig getum við mætt þeim með mótvægisaðgerðum? Enn fremur er hér lögð til eftirfylgni, að við séum að fylgja eftir, meta árangurinn og draga lærdóm af því ef ákvarðanir sem eru teknar hafa of mikil áhrif. Þá bætum við ferlið. Það er það sem þessi þingsályktunartillaga gengur í rauninni út á.