157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

endurskoðun á skipulagi leik-, grunn- og framhaldsskóla.

10. mál
[21:14]
Horfa

Flm. (Jón Pétur Zimsen) (S):

Herra forseti. Mér er heiður að mæla hér fyrir tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á skipulagi leik-, grunn- og framhaldsskóla. Sjálfur er ég framsögumaður og með mér á þessari þingsályktunartillögu eru Jens Garðar Helgason, Guðlaugur Þór Þórðarson, Vilhjálmur Árnason, Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Rósa Guðbjartsdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir. Í þessari tillögu eru 19 þættir sem ég ætla að fara yfir. Þessir 19 þættir eru þess eðlis að við gætum snúið vörn í ákveðinn menntasigur ef við myndum fara eftir því sem hér stendur; þetta er ofboðslega mikilvægur málaflokkur. Gagnrýndar rannsóknir segja að helmingur hagvaxtar í heiminum skýrist af menntun og að við hvert aukaár af góðri menntun bætist 9% við árstekjur hvers og eins þannig að hér er ekki bara um hornstein lýðræðisins, menntun og læsi, að ræða heldur er þetta grjóthart efnahagsmál líka. Í okkar ríka landi hefur okkur því miður ekki alveg borið gæfa til að gera það besta sem íslensk börn eiga skilið. Helmingur drengja og þriðjungur stúlkna er ekki með grunnfærni í lesskilningi og er það sérlega bagalegt hjá bókaþjóðinni Íslandi. Það sem líka er kannski eftirtektarvert er að við erum með sérlega fáa nemendur í efstu þrepum hæfniramma PISA, einungis 2%, á meðan t.d. aðrar þjóðir á Norðurlöndum eru með 14% og meðaltal OECD er 7–8%. Við erum því margfalt undir því og við fáum af því fréttir að einelti, líðan og geðheilbrigði versni. Hér eru tillögur til að bæta úr því.

Það er í raun ekki gott fyrir okkur Íslendinga að staðan sé þessi hjá börnunum okkar. Auðvitað eru ekki öll börn þessu marki brennd en það á ekkert barn að vera í þessari stöðu. Við þurfum því að grípa til aðgerða. Þessi málaflokkur er sá mikilvægasti að mínu mati. Alþingi ályktar að fela mennta- og barnamálaráðherra að hefja vinnu við heildstæða endurskoðun á skipulagi leik-, grunn- og framhaldsskóla með það að markmiði að bæta gæði menntunar, auka skilvirkni í skólakerfinu og tryggja að allir nemendur fái tækifæri til að nýta hæfileika sína til fulls. Endurskoðunin skuli byggð á eftirfarandi aðgerðum. Ég fer yfir þær aðgerðir hér á eftir.

Menntakerfið er undirstaða framþróunar samfélagsins og mikilvægasta jöfnunartæki sem völ er á. Þar er lagður grunnur að tækifærum framtíðarinnar. Til þess að tryggja öllum börnum gæðamenntun sem undirbýr þau fyrir framtíðina þarf að endurskoða skipulag leik-, grunn- og framhaldsskóla með áherslu á þá þætti sem eru líklegir til að stuðla að betri menntun og tryggja þeim betri þjónustu. Í þingsályktunartillögu þessari eru sett fram 19 atriði sem flutningsmenn telja að hafi jákvæð áhrif á skólastarf í landinu og geti stutt við þau markmið sem rakin eru hér að framan. Ég fer þá yfir þessi 19 atriði sem eru í tillögunni:

1. Biðlistum eftir leikskólaplássum verði útrýmt. Langir biðlistar eftir leikskólaplássum valda foreldrum áhyggjum og skerða möguleika barna til réttmætrar menntunar. Leita þarf nýrra leiða til að skipuleggja ný úrræði og tryggja öllum börnum leikskólapláss frá 12 mánaða aldri. Í því sambandi má skoða fjölbreytt rekstrarform leikskóla og það munum við í Sjálfstæðisflokknum gera, verði þetta eitthvað sem menn vilja fara eftir.

2. Börn njóti íslensks málumhverfis í leikskólum. Til að tryggja góðan málþroska og læsi þarf að leggja áherslu á íslenskt málumhverfi í leikskólum. Markmiðið er að meiri hluti starfsfólks leikskóla búi yfir hæfni í íslensku sem er til eftirbreytni. Bjóða þarf starfsfólki leikskólanna sem uppfyllir ekki þau skilyrði upp á íslenskukennslu.

3. Samskipti milli foreldra og skóla séu jákvæð og uppbyggileg. Mikilvægt er að fyrstu samskipti skóla og heimilis séu jákvæð og uppbyggileg og að umsjónarkennari bendi forsjáraðila með markvissum hætti á það jákvæða sem umsjónarmennirnir hafa fram að færa. Með þessari aðgerð er byggð brú á milli heimilis og skóla og jákvæð tengsl mynduð. Jákvætt samtal er ábatasamt fyrir börn sem standa höllum fæti, námslega eða félagslega, og ávöxtur samtalsins er frábær forvörn.

4. Öll börn geti lesið texta við hæfi eftir 2. bekk grunnskóla. Lestrarkunnátta er grunnstoð náms- og samfélagsþátttöku. Stöðumat á framvindu lestrarkennslu gefur nauðsynlegar upplýsingar um lestrarhæfni barns á hverjum tíma. Öll börn, nema þau sem eiga við sértæka námsörðugleika að stríða, ættu að geta lesið texta við hæfi eftir 2. bekk. Grípa þarf inn í með sértækum stuðningi ef það næst ekki.

5. Stuðst verði við nýja, skýra og aðgengilega aðalnámskrá grunnskóla. Það hefur ítrekað komið fram í skólasamfélaginu að erfitt er að vinna með aðalnámskrá grunnskóla. Hún er lítt þekkingarmiðuð þannig að kennarar eiga margir hverjir í erfiðleikum með að átta sig á til hvers er ætlast af þeim, foreldrar og börn hvað þá heldur. Því er nauðsynlegt að búa til nýja þekkingarmiðaða námskrá sem stjórnvöld og skólasamfélagið geta unnið markvisst eftir til að ná þeim árangri sem stefnt er að.

6. Námsmat sem byggir á bókstöfum verði lagt niður. Námsmat í núverandi námskrá er illskiljanlegt fyrir kennara, foreldra og nemendur og mikil eftirspurn er eftir breytingum. Markmið námskrárinnar sem byggja á textum og eru táknuð með bókstöfum ætti að leggja af. Skólar hafi frelsi til að útfæra eigið námsmat, sem er réttmætt og áreiðanlegt. Mikilvægt er að það verði skiljanlegt fyrir nemendur og foreldra. Staðan er ekki svo í dag.

7. Samræmd lokapróf verði tekin upp að nýju. Samræmd lokapróf varpa ljósi á það hvernig nemendum hefur tekist að tileinka sér og komast í snertingu við öll hæfniviðmið aðalnámskrár. Prófin eru hvetjandi og stuðla að jafnræði og gagnsæi. Það leiðir til úrbóta og endurgjafar fyrir nemendur, foreldra, skóla og menntayfirvöld.

8. Skólar verði símalausir. Það hefur verið farið ágætlega yfir það hér í dag. Við það að skólar verði símalausir minnkar áreiti og truflun, félagsfærni eykst, vanlíðan minnkar og ýmsir jákvæðir þættir eru í því. Vonandi náum við að búa til góða greinargerð með frumvarpinu sem hæstv. ráðherra lagði hér fram í dag.

9. Stórbætt námsgögn og nýsköpun innleidd með menntatækni og gervigreind. Þróa þarf ný og betri námsgögn til að ná árangri. Eftir þessu kalla kennarar þannig að þeir geti einbeitt sér að kennslunni. Mikilvægt er að nýta menntatækni til nýsköpunar í fjölbreyttri námsefnisgerð. Nota ætti gervigreind til að búa til einstaklingsmiðaðri námsgögn en við þekkjum. Þetta er mikilvægt og hægt að gera núna en auðvitað þarf endurmenntun að fylgja með þannig að allir starfsmenn skóla, sérstaklega kennararnir, séu öruggir í sínum aðgerðum hvað þetta varðar.

10. Valfrelsi í menntakerfinu verði aukið og fé fylgi nemanda. Samhliða opinberum rekstri á að nýta kosti einstaklingsframtaksins með öflugum sjálfstætt starfandi skólum og nýsköpun á sem flestum sviðum. Hið opinbera á að greiða það sama af nemendum óháð rekstrarformi skóla.

11. Hreyfing verði hluti af skóladegi alla daga. Í dag eru tveir leikfimitímar og einn sundtími hjá börnum og við leggjum hér til að hreyfing verði markviss hluti af öllum skóladögum. Rannsóknir sýna örugglega fram á að nemendur sem hreyfa sig eru nemendur sem hafa aukinn námsárangur og einbeitingu. Hreyfing hefur að sjálfsögðu mjög jákvæð áhrif á heilsu nemenda.

12. Skóli án aðgreiningar; það hugtak verði endurskilgreint og valfrelsi foreldra aukið. Endurskilgreina þarf hugmyndirnar um skóla án aðgreiningar til að tryggja að allir þeir nemendur sem mögulega þurfa aukinn stuðning fái hann. Það þarf líka að tryggja að fólk sem vill að börnin þeirra fái aðgang að sérþjónustu fái þá sérþjónustu.

13. Komið verði á fót móttökuskólum eða -deildum fyrir börn sem ekki tala íslensku og eru nýflutt til landsins. Hér erum við að tala um það að börn sem tala ekki íslensku fái markvissa og mikla íslenskukennslu þegar þau koma til landsins þannig að þau nái tökum á tungumálinu. Það er mjög mikilvægt að önnur kynslóð innflytjenda nái tökum á íslenskunni þannig að þeir verði fullgildir þátttakendur í samfélaginu. Annars er hætta á því að börn með erlendan bakgrunn jaðarsetjist og taki ekki þann virka þátt í samfélaginu sem þau eiga skilið og samfélagið okkar þarf.

14. Geðrækt verði efld í skólakerfinu og brotthvarf minnkað. Eftir aðgerðir vegna heimsfaraldurs og sökum minnkandi félagsfærni hefur skapast töluvert los í ákveðnum nemendahópum. Brotthvarf er of mikið í framhaldsskólum. Nemendur finna síður tilgang og eru frekar einmana, finna til depurðar og eru líklegri en ella til að hætta námi. Halda þarf mun betur utan um þennan viðkvæma nemendahóp og leita allra leiða til að styðja hann í gegnum námið, m.a. með öflugri geðheilbrigðisþjónustu við ungt fólk og fjölskyldur þeirra.

15. Rýmum fyrir iðnnema verði fjölgað í menntakerfinu. Við vitum það nú að sem betur fer hefur ásókn í iðnnám aukist verulega og svo er komið núna að vísa þarf nemendum frá iðnnámi og sérstaklega eldri nemum. Það þarf að laga þetta. Það má t.d. nýta dagskólana til að koma á kvöld- eða helgarnámskeiðum, eða þá á sumrin. Þessi rými opinberra stofnana er hægt að nýta mun betur.

16. Skýr markmið verði sett um betri árangur í PISA og læsi. Við þurfum sem þjóð að setja okkur ákveðin markmið í því að ná árangri í þessu prófi, PISA-prófinu, sem mælir getu nemenda til að geta tekið sjálfstæð skref eftir tíunda bekk. Þetta er próf sem reynir á það hversu vel börn og ungmenni bjarga sér eftir grunnnám eða skyldunám í þeim skólum sem prófið tekur til.

17. Kennaramenntun verði endurskoðuð. Mikið er um að kennarar snúi sér að öðrum störfum en kennslu og sú gagnrýni hefur komið fram að námið búi þá ekki nægilega vel undir starfið innan kennslustofunnar. Kennaranám verður að vera hagnýtara og í auknum mæli þarf að bjóða upp á nám til að kennarar geti jafnt og þétt bætt færni sína á hinum ýmsu sviðum.

18. Kennarar og starfsfólk skóla njóti aukinnar virðingar. Starfsfólk skóla gegnir einu mikilvægasta starfi samfélagsins. Mikilvægt er að auka virðingu þess með bættri og markvissri umræðu. Starfsfólk skólanna kemur að lífi okkar allra og hefur langoftast jákvæð og uppbyggileg áhrif á börnin okkar. Kennarar og starfsfólk eiga að hafa frelsi til að útfæra góðar hugmyndir sem bæta skólastarf. Mikilvægt er að skólastjórnendur beri ábyrgð á skólastarfi og hafi rými til að umbuna sérstaklega því starfsfólki sem skarar fram úr og er leiðandi hvað varðar allar framfarir barna.

19. Undirbúningur verði hafinn sem miðar að fjölgun nemenda í STEAM-greinum og heilbrigðisvísindum. Fjölgun nemenda í heilbrigðisþjónustu og STEAM-greinum, vísinda- og tæknigreinum, verkfræði, listgreinum og stærðfræði er lykilatriði til að mæta framtíðaráskorunum á vinnumarkaði og efla nýsköpun. Það mætti gera með aukinni áherslu á þessar greinar í grunn- og framhaldsskólum og með hvötum fyrir kennara til að sérhæfa sig í kennslu STEAM-greina og heilbrigðisvísinda.

Hér hef ég farið yfir 19 aðgerðir sem hægt er að fara í. Kostnaðurinn við þær er alls ekki mikill og þær eru þannig að það er náttúrlega búið að prófa þær í raun allar. Við vitum að þær skila miklum árangri. Þetta er málaflokkur, svo ég ítreki það, menntamálin, sem snertir okkur öll með einhverjum hætti, hvort sem við erum foreldrar, frænkur, frændur, afar eða ömmur. Við verðum að gera eitthvað í þeirri stöðu sem nú er komin upp í menntakerfinu. Kennarar þurfa á því að halda að við styðjum við þá. Ég get tekið t.d. þetta með móttökudeildir og skóla. Það er erfitt fyrir kennara að vera í 20 barna bekk með börnum sem mögulega þurfa sérkennslu og svo eru önnur börn sem tala ekki íslensku. Kennarinn kemur þá sérkennilega inn í bekkinn. Í stað þess að hann hjálpi börnum sem þurfa sérkennslu er hann að aðstoða börn sem eru mállaus. Hérna gætum við nýtt sérfræðiþekkingu þeirra sem eru bestir í að kenna börnum íslensku og eflt sjálfstraust og sjálfsmynd þeirra barna sem koma hingað og eru ekki með íslensku sem móðurmál. Okkur ber að nýta þennan mannauð betur og á hagnýtari hátt. Þessar 19 aðgerðir eru vel úthugsaðar. Ég hvet þingið til að taka vel í þessa þingsályktunartillögu og þakka fyrir að fá að flytja hana hér í kvöld.