sveigjanleg tilhögun á fæðingar- og foreldraorlofi.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér aftur fyrir þingsályktunartillögu um frjálsa ráðstöfun fæðingarorlofs. Það hefur bæst í hóp meðflutningsmanna frá því ég mælti fyrir málinu á síðasta þingi en með mér á málinu núna eru hv. þingmenn Ingibjörg Davíðsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorgrímur Sigmundsson, Jens Garðar Helgason og Vilhjálmur Árnason.
Ný þingsályktun hljómar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela félags- og húsnæðismálaráðherra að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, þess efnis að foreldrum verði tryggður sameiginlegur réttur til tólf mánaða fæðingarorlofs sem þeir geti skipt með sér á 24 mánaða tímabili.“
Nú vill svo skemmtilega til, áður en ég fer í efnisatriði greinargerðar, og mig langar að rifja það upp, að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur tekið aldeilis vel í þau sjónarmið sem hér eru sett fram varðandi það að foreldrar hafi raunverulega stöðu og rétt til að ráðstafa þessum réttindum barnsins sem eru hugsuð til þess að styðja við viðgang og þroska barnsins og möguleika foreldra til að verja tíma með barninu. Hæstv. ráðherra hefur lýst yfir þeirri afstöðu að allt annað en að leyfa þetta sé forsjárhyggja og fyrir það ber að þakka. Mig langar að segja nokkur orð og fara yfir efnisatriði í greinargerð þessa máls.
Þingsályktunartillaga þessi er lögð fram í sjötta sinn en var síðast lögð fram á 156. löggjafarþingi, sem sagt á síðasta löggjafarþingi, og er nú endurflutt óbreytt. Á 151. löggjafarþingi voru samþykkt ný lög um fæðingar- og foreldraorlof sem eru nr. 144/2020. Samkvæmt lögunum hafa foreldrar mun takmarkaðri möguleika en áður til að taka ákvarðanir um þá tilhögun fæðingarorlofs sem hentar barni þeirra best og með hag þess að leiðarljósi. Með þeim er þrengt verulega að rétti foreldra til að ákveða sjálfir hvernig fæðingarorlofi þeirra með barni sé best háttað.
Þingsályktunartillaga þessi er lögð fram með það að markmiði að tryggja jafnan rétt foreldra til sjálfstæðrar ákvarðanatöku um tilhögun fæðingarorlofs. Það er mat flutningsmanna að foreldrar séu jafnan réttu aðilarnir til að meta hvað sé barni þeirra fyrir bestu.
Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um fæðingar- og foreldraorlof er tekið fram að tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar sé að rúm 20 ár séu liðin frá því að eldri lög um fæðingar- og foreldraorlof, sem voru nr. 95/ frá árinu 2000, tóku gildi og því sé rétt að laga fæðingarorlofskerfið að þeirri miklu þróun sem hefur orðið í samfélaginu, þar á meðal í jafnréttismálum og varðandi stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Flutningsmenn fá ekki séð hvernig forræðishyggja gagnast í jafnréttisbaráttu foreldra með þeim hætti sem lögin leiða út eins og þau eru núna. Í lögunum er kveðið á um að hvort foreldri um sig skuli fá greitt sex mánaða fæðingarorlof. Réttur foreldra til að skipta með sér fæðingarorlofi er skertur úr þremur mánuðum í sex vikur. Flutningsmenn fá ekki séð hvernig sú breyting sem varð við gildistöku nýju laganna kemur til móts við þarfir fólks í nútímasamfélagi þar sem sveigjanleiki er að jafnaði meiri en hann var fyrir 25 árum síðan við gildistöku eldri laga. Þá er erfitt að sjá hvernig áðurnefndar breytingar auka jafnrétti og sérstaklega hvernig þær eigi að bæta stöðu kynjanna á vinnumarkaði.
Aðstæður foreldra á vinnumarkaði eru mismunandi og kalla á aukinn sveigjanleika við töku fæðingarorlofs. Flutningsmenn telja að réttindi barns til umgengni við foreldra séu best tryggð með því að fela foreldrum sjálfum að skipa tilhögun fæðingarorlofs síns. Markmið frumvarpsins, sem hér er lagt til að félags- og húsnæðismálaráðherra verði falið að leggja fram, verði að tryggja rétt foreldra til að deila með sér tólf mánuðum fæðingarorlofs án þess að hlutast sé til um nánari skiptingu þeirra á milli með lögum. Þannig verði best tryggt að mismunandi fjölskylduaðstæður bitni síður á réttindum barnsins. Með auknum sveigjanleika við töku fæðingarorlofs er jafnframt komið til móts við þá foreldra og þau börn sem ekki fá inni á ungbarnaleikskóla eða hjá dagforeldri.
Virðulegur forseti. Ég hef hér tæpt á efnisatriðum greinargerðar þessarar þingsályktunartillögu. Mér sýnist stuðningur við þessi sjónarmið hafa aukist umtalsvert hér í þinginu frá því málið var fyrst lagt fram. Nú er formaður eins ríkisstjórnarflokksins, hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, Inga Sæland, fylgjandi þeim sjónarmiðum sem hér eru leidd út. Ég veit að þingmenn Miðflokksins eru þessarar skoðunar og ég tel mig vita að þingmenn Sjálfstæðisflokksins séu það að meginhluta til, ef ekki öllum, og það kæmi mér á óvart ef þingmenn Framsóknarflokksins væru ekki að stórum hluta til fylgjandi þessum sjónarmiðum. Því vona ég að eftir meðferð þessa máls í hv. velferðarnefnd komist það hér inn til 2. umræðu og atkvæðagreiðslu því það getur ekki verið markmið okkar hér að sýna slíka forsjárhyggju þegar kemur að því að þvinga foreldra til að taka ákvarðanir sem verða þess valdandi að barn fær ekki að njóta þess sem er markmið laganna, að barn njóti tólf mánaða fæðingarorlofs foreldra því að tölfræðin segir okkur að foreldrar taki að meðaltali um tíu og hálfan mánuð í fæðingarorlof. Það er auðvitað til komið vegna mismunandi aðstæðna á heimilum. Það er engin önnur skýring í boði og við hér á Alþingi eigum ekki að vasast í akkúrat þessu í ljósi þess að markmiðið hlýtur að vera velferð barnsins. Foreldrarnir eru í miklu betri færum til þess að ákvarða hvað er rétt í þeim efnum heldur en einhver kontóristi hér í bæ, með fullri virðingu fyrir þeim. Við eigum bara að leyfa foreldrum að ráða þessu, gera þetta eins og barninu hentar best. Þannig nýtast tólf mánuðir sem áfram nýtast síðan til að mæta þeim vanda sem blasir við okkur hvað varðar dagvistun og annað slíku tengt. Hér koma fram kjörnir fulltrúar, bæði á þingi og í sveitarstjórnum og segja: Heyrðu, lausnin á leikskólavandanum er að lengja fæðingarorlofið. Eigum við ekki að byrja á því að leyfa foreldrum að ráðstafa fæðingarorlofinu sem þeim er þó ætlað samkvæmt lögum? Er það ekki ágætis fyrsta skref? Ég hvet þingheim allan til að fylkja sér á bak við þetta mál. Stuðningurinn fer jafnt og þétt vaxandi. Þetta er sanngjarnt og skynsamlegt en best er þetta fyrir barnið af öllum hlutaðeigandi aðilum borðið um kring.
Virðulegur forseti. Ég ætla að láta þetta duga hér sem framsögu þessa máls í þessari atrennu og óska eftir því að málið gangi til hv. velferðarnefndar að lokinni umræðu hér í þingsal.