157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Borist hefur bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 235, um heimavist Fjölbrautaskóla Suðurlands, frá Höllu Hrund Logadóttur, og á þskj. 204, um meðferðarúrræði fyrir börn með alvarlegan fíknivanda, frá Jóni Gnarr. Einnig hefur borist bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 250, um kostnað við eftirlit með hvalveiðum, frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.