157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

undanþága vegna verndaraðgerða ESB varðandi kísilmálm.

[15:02]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegi forseti. Það var verið að birta frétt hjá Ríkisútvarpinu um að Ísland og Noregur fái ekki undanþágu frá fyrirhuguðum verndaraðgerðum Evrópusambandsins gagnvart kísilmálmi samkvæmt tillögu sem framkvæmdastjórn ESB tilkynnti í gær. Þess skal þó getið að aðildarríki ESB eiga eftir að gefa endanlegt samþykki. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti íslenskum og norskum stjórnvöldum að ríkin tvö fengju ekki undanþágu frá fyrirhuguðum verndaraðgerðum ESB vegna kísilmálms sem hafa verið í undirbúningi síðustu misseri.

Nú langar mig til að spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra hvort þetta sé enn eitt áfallið á hinu svokallaða verðmætasköpunarhausti og mig langar til að biðja hana um að koma hingað og útskýra fyrir okkur hvernig hagsmunagæslu hefur verið háttað í þessu máli. Einnig óska ég eftir því að hæstv. ráðherra tali nú aðeins við okkur um það hver möguleg áhrif gætu orðið af þessari aðgerð Evrópusambandsins og möguleg áhrif hennar á starfsemi Elkem á Grundartanga. Nú hafa dunið yfir áföll á Grundartanga og þetta verður þá enn eitt áfallið sem mun ríða yfir þann ágæta vinnustað og einnig nærliggjandi sveitarfélög sem eiga mikið undir að atvinnulíf gangi vel. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt að ráðherrann dragi ekkert undan þegar hann gefur mér mögulegar skýringar á þessu.