undanþága vegna verndaraðgerða ESB varðandi kísilmálm.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa mikilvægu fyrirspurn vegna þess að það er auðvitað rétt eins og fram kemur í máli hans að þetta eru upplýsingar sem við höfum nýverið fengið og málið er svo sem á fyrstu stigum. Við höfum fengið tilkynningu til sameiginlegu EES-nefndarinnar um þessar tillögur að verndarráðstöfunum vegna innflutnings á járnblendi og þar kemur í ljós að hugmynd framkvæmdastjórnarinnar er að Ísland og Noregur séu ekki undanskilin. Þetta eru auðvitað vonbrigði. Við teljum eftir sem áður að þetta sé ekki í samræmi við það sem stendur í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og við það stöndum við. Það er það sjónarmið sem við höfum haldið á lofti í okkar hagsmunabaráttu alla tíð frá því að þetta mál kom upp.
Líkt og kemur fram í máli hv. þingmanns er ekki búið að taka endanlega afstöðu til málsins og mér skilst að það verði á föstudaginn. Þangað til veit ég að hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. forsætisráðherra, með sínu fólki, eru í þéttum samtölum og við erum áfram, samhliða félögum okkar í Noregi, að halda því til streitu við aðildarríkin að þau snúi þessu við. Það er plan A. Við höfum hins vegar alla tíð verið líka með annan bolta sem er þá að tala um tollkvóta og lágmarksverð, nokkuð sem gæti dregið úr neikvæðum áhrifum, jafnvel svo verulega um munaði. Við erum að halda þeim bolta á lofti líka í samtölum þó að við séum enn þá að reyna að snúa við þessari hugmynd. Við lítum þetta mál alvarlegum augum og erum að beita öllum okkar kröftum en jafnframt er staðan sú að við erum vongóð með það að náum við ekki að snúa þessu við þannig að plan A, að við séum undanþegin þessum verndartollum, nái fram að ganga, þá a.m.k. sé plan B þannig að það séu tollkvótar og lágmarksverð á útflutning þannig að áhrifin á okkur verði í miklu lágmarki ef svo má segja. Það er auðvitað of snemmt að tala um það fyrr en endanleg útfærsla liggur fyrir.