157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

undanþága vegna verndaraðgerða ESB varðandi kísilmálm.

[15:09]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Aftur þakka ég andsvarið en ég verð að segja að ég vona að það hafi ekki verið viljandi útúrsnúningur hjá hv. þingmanni þegar hann hefur það eftir mér að við séum á fyrstu stigum þessa máls. Það var langt í frá það sem ég sagði. Ég sagði nákvæmlega að við hefðum staðið í mjög sterkri og öflugri hagsmunabaráttu ásamt Noregi sem er í sömu stöðu og við. Við vissum að það væru tvær leiðir. Í leið a, ef ég má segja sem svo, væri markmiðið að tryggja að við yrðum undanþegin þessu þrátt fyrir þá staðreynd að við erum ekki í tollabandalagi líkt og við værum jú í innan Evrópusambandsins. Það er staðreyndin. Um það hefur hagsmunabaráttan snúist. Nú liggur þetta fyrir. Sú ákvörðun var að koma. Það hefur ekki verið endanleg ákvörðun tekin, hún hefur ekki verið staðfest, það er á fyrstu stigum. Það skýrist eftir, held ég að ég fari rétt með, á föstudaginn.

Plan B, sem alla tíð hefur verið unnið samhliða, er þá það að lágmarka áhrifin. Ég treysti mér til að segja að þau muni verða að miklu leyti lágmörkuð, ef ekki alveg þurrkuð út, ef við náum því í gegn í verri stöðunni (Forseti hringir.) að um sé að ræða lágmarkstoll, lágmarkskvóta og síðan lágmarksverð. Ég tel of snemmt að svo stöddu, á meðan við erum enn þá í þessu öfluga samtali, að fara að ætla hver næstu skref verða en ég get alveg fullvissað bæði hv. þingheim og allan almenning um (Forseti hringir.) að hagsmunabaráttu Íslands verður áfram haldið eins og best væri á kosið líkt og hingað til.