markmið Íslands um losun gróðurhúsalofttegunda.
Virðulegi forseti. Það er hárrétt sem kom fram í máli hv. þingmanns að skömmu eftir að ég kom inn í ráðuneytið þá varð mér það ljóst að á undanförnum árum hafa Evrópusambandið og Ísland haft gjörólíkan skilning á því hvað felst í landsákvörðuðu framlagi Íslands gagnvart Parísarsamningnum. Það er mikilvægt að gera greinarmun annars vegar á loftslagssamstarfinu almennt í gegnum Evrópusambandið sem byggist m.a. á skuldbindingum sem voru samþykktar hér á þinginu árið 2020, þar sem hertar kröfur um samdrátt í losun frá ESR eða losun á beinni ábyrgð Íslands voru færðar inn í EES-samninginn og með þessu verða mögulega til fjárhagslegar skuldbindingar ef stjórnvöld standa ekki við þau markmið sem gefin eru. Það sem hefur hins vegar ríkt ákveðin óvissa um og misjafn skilningur á er það hvernig þessi markmið eru talin fram gagnvart Parísarsamningnum. Við töldum ástæðu til að leiðrétta fyrri markmið og leiðrétta til þess m.a. að tryggja að Ísland væri ekki að byggja á markmiðum sem eru með öllu óraunhæf fyrir okkur þannig að samkvæmt nýja landsákvarðaða framlaginu þá stefnum við að 50–55% samdrætti í losun fyrir 2035. Það er bara í samfélagslosunarhlutanum. Ef við förum að skoða tölur um heildarmarkmið eða heildarlosun þá er Ísland auðvitað með markmið sem ganga miklu skemur en öll löndin í kringum okkur. Evrópusambandið er að setja sér markmið um 85% samdrátt þegar kemur að heildarmarkmiðum, heildarlosun. Ef við þýðum þau markmið sem Ísland hefur sett þá má kannski segja að markmið okkar séu 12–15%. (Forseti hringir.) Það eru nú öll ósköpin þarna en það byggist líka á sérstöðu okkar þegar kemur að heildarsamsetningu losunar.