markmið Íslands um losun gróðurhúsalofttegunda.
Virðulegur forseti. Það er kostulegt að núna liggi fyrir stefna um samdrátt upp á 50–55% þegar menn hafa horfst í augu við það að jafnvel markmið um 29% samdrátt eða 40% eða 41% eða jafnvel 35–45% samdrátt nást ekki. En þá er stefnan sett á samfélagsnotkunina. Til að setja þetta í samhengi er samfélagslosun um 26% af heildarlosun. Ef það næðist að draga úr losun um 29% á 25 árum, eins og sum markmiðin eru, þá er þetta kannski 7% samdráttur í heildarlosun eða 0,25% á ári. Það er allt með öllum þessum bægslagangi. Ég spyr hæstv. ráðherra hvort hann telji ekki tilefni til þess komið að í stað þess að vera að stagbæta þessi markmið, eyða mannafla og peningum í að semja við Evrópusambandið eða einhver fleiri ríki eða mæta á þessa fundi erlendis, hvort það sé ekki markmið núna að tími ráðuneytismanna og hæstv. ráðherra fari í að leggja drög að því að draga Ísland (Forseti hringir.) úr þessum markmiðum um samþætta losun? Því eins og allir vita er Ísland heimsmeistari (Forseti hringir.) þegar kemur að loftslagsmálum og við eigum svo sannarlega ekki að vera með markmið um samdrátt eins og önnur Evrópuríki.