157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

markmið Íslands um losun gróðurhúsalofttegunda.

[15:17]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Nei, það kemur ekki til greina að Ísland dragi sig út úr alþjóðlegu loftslagssamstarfi. Það mun aldrei gerast á minni vakt og á vakt þessarar ríkisstjórnar. Það sem við erum hins vegar að gera er að við erum að setja okkur sjálfstæð markmið. Við erum hætt að hengja okkur utan í Evrópusambandið í þessum málum. Við setjum okkur sjálfstæð markmið sem eru í samræmi við aðstæður okkar hér. Við njótum góðs af þeim árangri sem við höfum náð þegar kemur að nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Við horfum til sérstöðu okkar þegar kemur að heildarsamsetningu losunar en um leið beitum við okkur af fullum þunga fyrir því að heimsbyggðin, og þar erum við í samstarfi við önnur ríki, gangi rösklega til verka þegar kemur að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þar ætlum við að taka fullan þátt. Það kemur ekkert annað til greina.